Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   lau 17. júlí 2021 09:00
Victor Pálsson
Allar líkur á að Vlahovic framlengi
Mynd: EPA
Það eru allar líkur á að Dusan Vlahovic skrifi undir nýjan samning við ítalska liðið Fiorentina að sögn umboðsmanns leikmannsins.

Vlahovic er 21 ára gamall en hann skoraði 21 mörk í Serie A á síðustu leiktíð og er orðaður við Liverpool og Tottenham.

Fiorentina vill þó ekki selja sinn öflugasta sóknarmann og er í viðræðum við umboðsmann hans um framlengingu.

Joe Barone sér um leikmannamál Fiorentina en hann er yfirmaður knattspyrnumála félagsins.

„Við erum að fara yfir hópinn eins og er og eftir fyrstu æfingarnar þá sjáum við hvað við þurfum að fá inn," sagði Barone.

„Vlahovic er leikmaður Fiorentina, hann á tvö ár eftir af samningnum og við erum í stanslausum viðræðum við hans umboðsmann um framlengingu."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner