Bayern München gæti gert óvænt tilboð í Rashford - Liverpool hafnaði fyrirspurn Bayern um Díaz og ætlar ekki að selja hann
   mið 02. júlí 2025 06:00
Elvar Geir Magnússon
Utandeildin komin á fulla ferð: Hamrarnir og Afríka á toppnum - KB gerði góða ferð austur
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Utandeildin er komin á fulla ferð en deildin er hluti af kerfi KSÍ og munu tvö efstu liðin vinna sér inn þátttökurétt í 5. deildinni. Alls eru átta lið í deildinni og er þetta fyrsta árið sem keppt er í henni.

Hamrarnir og Afríka eru efst með tólf stig, bæði með fjóra sigra og einn tapleik. Breiðholtsliðið KB á hinsvegar leik til góða og getur jafnað toppliðin að stigum.

Gengi Afríku kemur kannski mörgum á óvart en liðið hefur ekki verið vant því að vinna marga leiki í gegnum árin en er að finna sig vel í þessari nýju utandeild.

KB gerði góða ferð austur um liðna helgi og vann tvo 3-1 útisigra, fyrst gegn Neista Djúpavogi á laugardag og svo Boltafélagi Norðfjarðar á Búðagrund á sunnudag. Samkvæmt upplýsingum Fótbolta.net settu leikmenn liðsins einnig sölumet á ýmsum börum austfjarða.

Úrslitin síðustu daga

Boltaf. Norðfj. 1 - 3 KB
1-0 Hákon Huldar Hákonarson ('3 )
1-1 Ásbjörn Freyr Jónsson ('44 )
1-2 Sudip Bohora ('77 )
1-3 Þórarinn Þórarinsson ('90 )

Fálkar 1 - 2 Afríka
0-1 Cristian Andres Catano ('9 )
0-2 Cristian Andres Catano ('32)
1-2 Steinar Gauti Örnuson Dagsson ('49 )

Neisti D. 1 - 3 KB
0-1 Chalee Mohtua ('16 )
1-1 Haraldur Sigurjónsson ('23 )
1-2 Aron Jarl Davíðsson ('44 )
1-3 Þórarinn Þórarinsson ('65 )

Boltaf. Norðfj. 3 - 0 Einherji
1-0 Óðinn Þór Helgason ('56 )
2-0 Davíð Orri Valgeirsson ('73 )
3-0 Valgeir Elís Hafþórsson ('87 )
Utandeild
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Hamrarnir 5 4 0 1 25 - 5 +20 12
2.    Afríka 5 4 0 1 14 - 7 +7 12
3.    KB 4 3 0 1 8 - 6 +2 9
4.    Boltaf. Norðfj. 6 2 0 4 11 - 16 -5 6
5.    Neisti D. 4 2 0 2 5 - 13 -8 6
6.    Fálkar 4 1 0 3 8 - 8 0 3
7.    Einherji 4 0 0 4 5 - 21 -16 0
Athugasemdir
banner