Tottenham að vinna kapphlaupið um Robertson - Neymar til Bandaríkjanna? - Rogers eftirsóttur
Óli Skúla: Það er vinna framundan
Sölvi Geir: Ég veit ekki hvaða rök það eru
Anton um mistökin: Gylfi sá sem maður hefði síst viljað senda á
Gylfi Sig: Í 99 skiptum af 100 fer þessi bolti langt yfir mig
Nýliðinn Linda Líf: Hann sendi á mig, ég svaraði, hann hringdi svo og lét mig vita
Sá skemmtilegasti spilar í Garðabæ - „Stjörnumenn megi alveg vera spenntir"
Yngsti aðalmarkvörðurinn í Bestu - „Erfiðir átta mánuðir"
Thelma Karen: Bjóst ekki við svona stóru hlutverki
Álitið - Hver verður skemmtilegastur í viðtölum?
Höskuldur hungraður: Ætlum að svara fyrir síðasta tímabil
Veit ekki hvort Blikarnir fari í rokk og ról
Óli Skúla: Erum með þrjá öfluga miðverði
Sveindís: Komið og horfið á okkur vinna Úkraínu
Fyrirliðinn á leið í sinn fyrsta leik í efstu deild - „Pressan kemur frá sjálfum mér"
Álitið - Hver er huggulegastur?
„Svíafíflið þitt“ - Gæðastjórinn heldur rígnum lifandi
Hólmar Örn: Hefði engu máli skipt hvernig við hefðum æft
Guðrún sendir skýr skilaboð fyrir heimaleikina
Katla: Er alltaf að segja henni að koma og spila með íslenska landsliðinu
Sölvi Geir: Skotmarkið á okkur er stærra og við þurfum að gera meira
   lau 19. september 2015 17:13
Jóhann Ingi Hafþórsson
Kórnum
Björgvin Stefánsson: Ég skeit upp á bak
Björgvin Stefánsson
Björgvin Stefánsson
Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson
Björgvin Stefánsson, fyrirliði Hauka og markahæsti maður 1.deildar var ekki sáttur við sjálfan sig eða liðið eftir 2-0 tap gegn HK í dag.

Framherjinn brenndi af víti og átti ekki sinn besta dag.

Hann er hins vegar að öllum líkindum á leiðinni í atvinnumennsku eftir tímabilið og tók Fótbolti.net púlsinn á Björgvini.

Lestu um leikinn: HK 2 -  0 Haukar

„Við spiluðum ágætlega en náðum ekki að skapa eitt einasta færi í þessum leik, fyrir utan vítið sem ég skeit upp á bak og klúðraði."

Hann var sammála að þetta var ekki hans dagur í dag.

„Ég hef oft spilað betur, þetta var bara einn af þessum dögum. Þetta datt ekki fyrir mig í dag, sama hvað ég reyndi."

Hann er afar spenntur fyrir atvinnumennskunni eins og gefur að skilja.

„Ég fer út og æfi með liði núna, vonandi gengur það vel og að ég þurfi ekki að spila hérna á næsta ári. Ef ég fer ekki út, þá verð ég hérna hjá Haukum á næsta tímabili."

„Ég byrja á einu liði og hitt er ekki alveg staðfest. Vonandi fæ ég að æfa með sem flestum liðum og fæ að velja úr."

Viðtalið í heild sinni má sjá hér að ofan.
Slapp
banner