Man Utd íhugar að reyna við Mac Allister hjá Liverpool - Arsenal hefur áfram áhuga á Williams - Napoli vill ekki missa McTominay
   þri 17. febrúar 2026 18:37
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Búið spil hjá Aroni Einari og félögum eftir súrt tap
Aron Einar Gunnarsson.
Aron Einar Gunnarsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Aron Einar Gunnarsson kom inn á sem varamaður í hálfleik þegar lið hans, Al-Gharafa frá Katar, tapaði gegn Tractor frá Íran í Meistaradeildinni í Asíu.

Staðan var markalaus í hálfleik en Tractorstrákarnir voru of sterkir í síðari hálfleik.

Aron Einar fékk að líta gula spjaldið þegar um stundarfjórðungur var eftir af leiknum.

Al-Gharafa þurfti að vinna þennan leik til að komast áfram í 16-liða úrslitin en þeir sitja eftir með sárt ennið. Al-Gharafa náði bara í sex stig úr átta leikjum og fer ekki lengra í þessari keppni.
Athugasemdir
banner
banner
banner