Chelsea tapaði óvænt gegn Flamengo í leik liðanna í D-riðli á HM félagsliða í kvöld.
Pedro Neto slapp einn í gegn eftir tæplega stundafjórðung og kom Chelsea yfir en fleiri mörk voru ekki skoruð í fyrri hálfleik.
Bruno Henrique jafnaði metin fyrir Flamengo eftir rúmlega klukkutíma leik. Danilo, fyrrum leikmaður Real Madrid, Man City og Juventus, kom Flamengo síðan yfir.
Stuttu síðar fékk Nicloas Jackson rautt spjald en hann hafði aðeins verið inn á vellinum í fjórar mínútur eftir að hafa komið inn á fyrir Liam Delap sem var í fyrsta sinn í byrjunarliði Chelsea. Wallace Yan innsiglaði síðan sigur Flamengo. Þess má geta að Filipe Luis, fyrrum leikmaður Chelsea, er stjóri Flamengo og þá var Jorginho, annar fyrrum leikmaður Chelsea, í byrjunarliði brasilíska liðsins.
Flamengo er á toppnum með sex stig eftir tvær umferðir en Chelsea í 2. sæti með þrjú stig. Esperance Tunis og LAFC eru án stiga en liðin mætast í kvöld.
Auckland City steinlá 10-0 gegn Bayern í fyrstu umferð en liðið mætti Benfica í kvöld sem gerði jafntefli gegn Boca Juniors í fyrstu umferð. Benfica var með eins marks forystu í hálfleik en Angel Di Maria skoraði markið úr víti á lokasekúndunum.
Hinn tvítugi Nathan Garrow kom inn í markið hjá Auckland fyrir leikinn og átti stórleik í fyrri hálfleik. Eftir tæplega tveggja tíma töf á seinni hálfleiknum vegna veðurs komst Benfica í gang og vann leikinn örugglega að lokum.
Benfica er á toppi C-riðils með fjögur stig en Auckland á botninum án stiga. Bayern Munchen með þrjú stig en Boca eitt stig. Bayern og Boca mætast klukkan 1 í nótt.

Benfica 6 - 0 Auckland City
1-0 Angel Di Maria ('45 , víti)
2-0 Vangelis Pavlidis ('53 )
3-0 Renato Sanches ('63 )
4-0 Leandro Barreiro ('76 )
5-0 Leandro Barreiro ('79 )
6-0 Angel Di Maria ('90 , víti)
Flamengo 3 - 1 Chelsea
0-1 Pedro Neto ('13 )
1-1 Bruno Henrique ('62 )
2-1 Danilo ('65 )
3-1 Wallace Yan ('83 )
Rautt spjald: Nicolas Jackson, Chelsea ('68)
Athugasemdir