Liverpool og Man Utd berjast um miðjumann - Klopp tekur ekki við Real Madrid - Bayern hefur áhuga á Gordon
   lau 18. apríl 2026 20:17
Brynjar Ingi Erluson
Championship: Wrexham tveimur stigum frá umspilssæti - Skoraði þrennu á tæpum hálftíma
Wrexham ætlar sér í umspilið
Wrexham ætlar sér í umspilið
Mynd: EPA
Hollywood-lið Wrexham hefur ekki gefist upp á draumnum að komast í umspil um sæti í ensku úrvalsdeildina, en liðið er aðeins tveimur stigum frá umspilssæti eftir að hafa unnið 2-0 sigur á Stoke í dag.

George Thomason og Josh Windasson skoruðu með tveggja mínútna millibili eftir hálftímaleik.

Wrexham er í 7. sæti með 67 stig, aðeins tveimur stigum frá Hull sem er í umspilssæti. Hull fór illa að ráði sínu með því að gera 1-1 jafntefli við Birmingham.

Mohamed Toure skoraði þrennu á 24 mínútum í 4-2 sigri Norwich á Bristol City. Tölfræðilega á Norwich enn möguleika á umspilssæti, en til þess þarf liðið að vinna síðustu þrjá leiki sína og treysta á úrslit úr öðrum leikjum.

Fallið lið Sheffield Wednesday gerði 1-1 jafntefli við Charlton en þetta var þriðji leikurinn í röð sem Wednesday nær í stig. Þeir ætla ekki að falla í mínusstigum, en liðið er með þrjú stig í mínus þegar þrjár umferðir eru eftir.

Úrslit og markaskorarar:

Wrexham 2 - 0 Stoke City
1-0 George Thomason ('31 )
2-0 Josh Windass ('33 )

Swansea 1 - 2 Southampton
1-0 Marko Stamenic ('20 )
1-1 Shea Charles ('57 )
1-2 Cameron Archer ('90 )

Watford 0 - 2 Sheffield Utd
0-1 Patrick Bamford ('50 )
0-2 Patrick Bamford ('59 )

Hull City 1 - 1 Birmingham
1-0 Joe Gelhardt ('24 )
1-1 Tomoki Iwata ('77 )

Preston NE 0 - 2 West Brom
0-1 Josh Maja ('11 )
0-2 Daryl Dike ('77 )

Bristol City 2 - 4 Norwich
1-0 Sam Morsy ('2 )
1-1 Mohamed Toure ('51 )
1-2 Mohamed Toure ('70 )
1-3 Mohamed Toure ('75 )
1-4 Jose Cordoba ('79 )
2-4 Sam Bell ('90 )

Sheffield Wed 1 - 1 Charlton Athletic
0-1 Matty Godden ('49 )
1-1 Gabriel Otegbayo ('76 )
Stöðutaflan England Championship - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Coventry 43 25 11 7 85 43 +42 86
2 Millwall 43 22 10 11 58 47 +11 76
3 Ipswich Town 41 21 12 8 71 42 +29 75
4 Southampton 43 21 12 10 75 51 +24 75
5 Middlesbrough 42 20 12 10 62 42 +20 72
6 Hull City 43 20 9 14 65 61 +4 69
7 Wrexham 43 18 13 12 65 60 +5 67
8 Derby County 43 19 9 15 62 53 +9 66
9 Norwich 43 18 7 18 59 52 +7 61
10 Bristol City 43 16 10 17 54 55 -1 58
11 QPR 43 16 10 17 58 65 -7 58
12 Sheffield Utd 43 17 6 20 61 59 +2 57
13 Watford 43 14 15 14 52 53 -1 57
14 Birmingham 43 15 12 16 52 53 -1 57
15 Preston NE 43 14 15 14 50 55 -5 57
16 Swansea 43 16 9 18 51 56 -5 57
17 Stoke City 43 15 10 18 49 48 +1 55
18 Portsmouth 43 13 12 18 44 57 -13 51
19 Charlton Athletic 43 12 14 17 40 52 -12 50
20 West Brom 43 12 13 18 44 56 -12 49
21 Blackburn 44 12 13 19 39 54 -15 49
22 Oxford United 43 10 14 19 41 55 -14 44
23 Leicester 43 11 14 18 54 65 -11 41
24 Sheff Wed 43 1 12 30 26 83 -57 -3
Slapp
banner