Liverpool og Man Utd berjast um miðjumann - Klopp tekur ekki við Real Madrid - Bayern hefur áhuga á Gordon
banner
   lau 18. apríl 2026 20:25
Brynjar Ingi Erluson
Lengjubikarinn: Álftanes og Víkingur Ó. í úrslit
Víkingur Ó. er kominn í úrslit B-deildar Lengjubikarsins
Víkingur Ó. er kominn í úrslit B-deildar Lengjubikarsins
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Álftanes og Víkingur Ólafsvík eru komin í úrslit í neðri deildunum í Lengjubikarnum.

Ólsarar unnu Dalvík/Reyni, 2-1, í undanúrslitum B-deildar. Alysson Da Silva skoraði á 24. mínútu en Dalvík/Reynir jafnaði metin þegar stundarfjórðungur var eftir.

Aðeins þremur mínútum síðar gerði Ellert Gauti Heiðarsson markið sem kom Ólsurum í úrslitaleikinn, en andstæðingur þeirra verða Haukar eða Fjölnir sem mætast í hinum undanúrslitaleiknum á morgun.

Álftanes mun leika í úrslitum C-deildar eftir að hafa unnið KFR, 3-1.

KFR komst yfir á 20. mínútu með sjálfsmarki Hilmis Inga Jóhannessonar en svöruðu því með þremur mörkum á síðustu tuttugu mínútunum.

Sveinn Sær Vattnes Ingólfsson jafnaði á 72. mínútu og gerði Markús Pálmi Pálmason annað markið tíu mínútum síðar. Arian Ari Morina sendi síðan Álftanes í úrslitaleikinn með marki undir lok leiks.

Álafoss eða Hamar verður andstæðingur Álftnesinga í úrslitum.

Úrslit og markaskorarar:

B-deild:

Víkingur Ó. 2 - 1 Dalvík/Reynir
1-0 Allyson Fernando Santos Da Silva ('24 )
1-1 Almar Örn Róbertsson ('74 )
2-1 Ellert Gauti Heiðarsson ('77 )

C-deild:

KFR 1 - 3 Álftanes
1-0 Hilmir Ingi Jóhannesson ('20 , sjálfsmark)
1-1 Sveinn Sær Vattnes Ingólfsson ('72 )
1-2 Markús Pálmi Pálmason ('82 )
1-3 Arian Ari Morina ('90 )
Slapp
banner