Margrét Lára Viðarsdóttir spilar sinn 100. landsleik á morgun þegar Ísland fær Hvíta-Rússland í heimsókn í undankeppni EM klukkan 18:45.
„Vonandi getur maður fagnað þremur stigum í lokin. Það verður ekkert partý ef við vinnum ekki," sagði Margrét Lára við Fótbolta.net í dag.
„Vonandi getur maður fagnað þremur stigum í lokin. Það verður ekkert partý ef við vinnum ekki," sagði Margrét Lára við Fótbolta.net í dag.
„Ég man ennþá vel eftir fyrsta leiknum á móti Ungverjalandi 2003. Við unnum hann og það var mjög gaman."
Margrét Lára segist ekki vera með sérstakt fagn tilbúið ef hún nær að skora í 100. leiknum.
„Ég er bara að einbeita mér að leiknum og að liðið eigi góðan leik. Það hefur aldrei boðað gott þegar ég ákveð eitthvað fagn fyrirfram, það kemur bara kjánalega út. Ég einbeiti mér bara að leiknum."
767 áhorfendur mættu á vináttuleikinn við Slóvakíu fyrir helgi en Margrét vonast til að sjá fleiri á vellinum annað kvöld.
„Ég veit að Tólfan mætir og fleiri til. Það væri gaman að sjá fleiri en mömmu og pabba í stúkunni. Eins og ég hef alltaf sagt þá pínum við engan, fólk verður að finna það hjá sjálfri sér að það langi að mæta. Við ætlum að gera okkar besta úti á vellinum og smita góðri stemningu út í stúku,"
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.






















