Liverpool og Man Utd berjast um miðjumann - Klopp tekur ekki við Real Madrid - Bayern hefur áhuga á Gordon
Sterkastur í 2. umferð - Búið að vera langt ferli
Jói Kalli: Leikskipulagið gekk ekki alveg upp
Jökull orðinn helvíti þreyttur á að ákvarðanir fari gegn Örvari
Birnir Snær: Þegar við erum 'on it' þá er ekkert lið sem stoppar okkur
Gísli Eyjólfs: Þegar línan hjá dómaranum er svona þá myndast auðvitað hiti
Haraldur Freyr: Þetta var barnalegur varnarleikur hjá okkur
Valgeir: Flökkuðu einhver orð á milli okkar og því fór sem fór
Ólafur Ingi: Pínu heppnir að hanga á þessu
Rúnar Kristins: Hann er nánast eins og nýr leikmaður
Lúkas Logi: Vinnum sem lið og klárum leikinn saman
Haddi: Veit ekki hvort þetta sé "fair play" eða ekki
Segir þriðja liðið það slakasta á vellinum - „Strákur alinn upp í Kópavogi og skilur ekki norðlenskuna“
Sölvi Geir: Áttum inni víti
Alexsandar Linta: Þegar maður tapar er maður aldrei viss
Hrafn Tómasson: Kom ekkert annað til greina en að koma grjótharður til baka
Hemmi: Fínt að byrja snemma og meira eftir af helginni
Siggi Höskulds: Rosalega fá lið sem ráða við KR á þessu tempói
Óskar Hrafn: Að sækja markmann er ozempic leiðin
Alex Freyr: Framkvæmdastjóri með öll önnur verkefni nema leikmannamál, hvað þýðir það?
Cecilía Rán: Vorum nálægt því að skora á móti þeim síðast
banner
   fim 23. janúar 2014 00:21
Hafliði Breiðfjörð
Kristján Valdimarsson: Langar að enda ferilinn í Fylki
Kristján eftir undirskriftina í gær.
Kristján eftir undirskriftina í gær.
Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson
,,Þetta var þokkalegur leikur af okkar hálfu, gott að halda hreinu og klára leikinn með tveimur mörkum. Við erum bara sáttir en megum alveg spila betur," sagði Kristján Valdimarsson miðvörður Fylkis eftir 2-0 sigur á KV í Reykjavíkurmótinu í kvöld.

,,Þetta voru tvö fín mörk og gott að halda hreinu. Við þurfum bara að halda boltanum betur og byggja ofan á þennan leik og þá getum við gert ágætis hluti. Þetta var leikur á pari og ekkert meira en það."

Kristján var sjálfur að gera nýjan tveggja ára samning við félagið í gær eftir að hafa verið frá í eitt og hálft ár.

,,Ég er virkilega ánægður með samninginn og sérstaklega því ég er að koma úr erfiðum meiðslum og félagið sýnir mér þakklæti með að bjóða mér samning. Ég er mjög ánægður með það. Ég á svolítið í land með að ná alvöru formi en það kemur bara. Það er janúar og nokkrir mánuðir í mót."

Kristján æfði með Breiðabliki í haust og var ekki viss með framtíð sína fyrr en hann samdi í gær.

,,Ég æfði með Breiðabliki og er þakklátur fyrir að fá að æfa með þeim. Ég var að velta fyrir mér að prófa eitthvað nýtt. Það er ágætt þegar maður er að koma úr meiðslum að prufa eitthvað annað. Það var mjög gaman að æfa með Blikum, ég æfði með þeim í mánuð en ákvað á endanum að semja við mitt uppeldisfélag, mig langar að enda ferilinn þar. Ég er virkilega sáttur með dagsverkið."
Slapp
banner
banner