Adeyemi tekur Arsenal fram yfir Man Utd - Sancho þarf að lækka launin um helming - Lewandowski til Fenerbahce?
banner
   sun 23. nóvember 2025 19:33
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Frank tekur ábyrgð - „Verður að sjálfsögðu umtal"
Mynd: EPA
Tottenham steinlá í Norður-Lundúnaslagnum gegn Arsenal í úrvalsdeildinni í kvöld. Thomas Frank, stjóri Tottenham, var að vonum ekki ánægður í leikslok.

„Við spiluðum á móti okkar helstu erkifjendum og töpuðum illa, það verður að sjálfsögðu umtal. Við munum ekki hlusta á það, einbeitum okkur að liðinu," sagði Frank.

„Ég veit að þetta lið er samkeppnishæft, við sýndum það gegn Man City og PSG. Þetta var ekki nógu gott í dag."

Frank stillti upp varnarsinnuðu liði og Tottenham sá aldrei til sólar.

„Við leggjum mikið á okkur til að bæta það. Þetta leit ekki vel út í dag eða gegn Chelsea. Þetta hefur verið betra í öðrum leikjum. Við þurftum að gera margt betra í þessum leik."

„Ég reyndi að spila 5-4-1. Ég mun alltaf taka ábyrgð þar sem það er mín ákvörðun að spila þetta kerfi."
Athugasemdir
banner
banner