Robinson, Tonali og Iraola orðaðir við Man Utd - White á förum frá Arsenal? - Rudiger og Kolo Muani til Juve?
banner
   sun 23. nóvember 2025 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Þýskaland í dag - Leipzig þarf sigur
Mynd: EPA
Það fara tveir leikir fram í efstu deild þýska boltans í dag þar sem RB Leipzig getur endurheimt annað sætið með sigri gegn Werder Bremen í fyrri leik dagsins.

Leipzig getur brúað bilið á milli sín og toppliðs FC Bayern aftur niður í sex stig með sigri, en Leipzig tapaði gegn Hoffenheim í síðustu umferð eftir að hafa unnið þrjá leiki í röð þar á undan.

Werder Bremen er um miðja deild, sjö stigum á eftir Leipzig.

Í seinni leik dagsins eigast St. Pauli og Union Berlin við í neðri hlutanum.

St. Pauli er í fallsæti með 7 stig eftir 10 umferðir. Berlin er fimm stigum þar fyrir ofan.

Leikir dagsins
14:30 RB Leipzig - Werder Bremen
16:30 St. Pauli - Union Berlin
Stöðutaflan Þýskaland Bundesliga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Bayern 27 22 4 1 97 25 +72 70
2 Dortmund 27 18 7 2 58 28 +30 61
3 Stuttgart 27 16 5 6 56 36 +20 53
4 RB Leipzig 27 15 5 7 53 35 +18 50
5 Hoffenheim 27 15 5 7 54 39 +15 50
6 Leverkusen 27 13 7 7 52 36 +16 46
7 Frankfurt 27 10 8 9 50 51 -1 38
8 Freiburg 27 10 7 10 39 44 -5 37
9 Union Berlin 27 8 7 12 31 46 -15 31
10 Augsburg 27 9 4 14 33 50 -17 31
11 Mainz 27 7 9 11 33 42 -9 30
12 Hamburger 27 7 9 11 31 40 -9 30
13 Gladbach 27 7 8 12 33 46 -13 29
14 Werder 27 7 7 13 30 47 -17 28
15 Köln 27 6 8 13 38 47 -9 26
16 St. Pauli 27 6 6 15 24 44 -20 24
17 Wolfsburg 27 5 6 16 35 57 -22 21
18 Heidenheim 27 3 6 18 27 61 -34 15
Slapp
Athugasemdir
banner