Bruno sagður falur fyrir 60 milljónir punda - Sancho aftur til Dortmund - Zidane tekur við Frökkum - De Zerbi til Spurs
   þri 24. mars 2026 13:00
Elvar Geir Magnússon
England mun eiga heima í Kansas meðan á HM stendur
Hér mun enska landsliðið búa.
Hér mun enska landsliðið búa.
Mynd: The Inn at Meadowbrook
„Ég held að við séum ekki lengur í Kansas, Tótó!“ sagði Dórótea svo eftirminnilega í myndinum um Galdarkarlinn í Oz.

Kansas verður einmitt heimili enska landsliðsins á meðan HM stendur í sumar.

Liðið mun hafa höfuðstöðvar á The Inn at Meadowbrook.

Það er mismunandi hvernig liðin hafa þetta meðan á mótinu stendur; sum lið munu ferðast milli keppnisstaða og gista þar en önnur, eins og England, munu hafa fastan viðverustað og ferðast þaðan í leikina.

Það eru margir golfvellir í kringum hótel enska liðsins og þá ætlar enska sambandið að láta setja upp körfuboltavöll. Það er sundlaug við hótelið þar sem leikmenn geta buslað og látið sér líða vel.

Enska liðið mun svo æfa á æfingasvæði sem Sporting Kansas City notaði áður en liðið er komið á nýtt svæði.

HM hefst 11. júní en fyrsti leikur Englands er sex dögum síðar. England mætir Króatíu í Dallas í fyrsta leik og mæta svo Gana og Panama í Boston og New York í hinum leikjum riðilsins.
Athugasemdir
banner
banner