Sergej Barbarez, landsliðsþjálfari Bosníu og Hersegóvínu, hefur sakað velska stjóra Bröndby, Steve Cooper, um að hafa skilið Bosníumanninn Benjamin Tahirovic utan hóps í síðustu leikjum Bröndby vegna komandi landsleiks gegn Wales í umspili um sæti á HM.
Barbarez var vægast sagt ósáttur út í Cooper á blaðamannafundi í gær og sagði leikmanninn sjálfan hafa greint sér frá málinu. Hann gaf í skyn að þjóðerni Cooper hafi spilað rullu í ákvörðuninni.
Barbarez var vægast sagt ósáttur út í Cooper á blaðamannafundi í gær og sagði leikmanninn sjálfan hafa greint sér frá málinu. Hann gaf í skyn að þjóðerni Cooper hafi spilað rullu í ákvörðuninni.
„Tahirovic hefur sagt mér hluti sem erfitt er að trúa. Þetta tengist þjálfaranum hans og bakgrunni hans.
Þegar þjálfarinn segist óska honum góðs gengis, en ekki landsliðinu hans, þá er það mjög skýrt. Hann sagði honum að eftir landsliðsverkefnið myndi allt verða eðlilegt aftur,“ sagði Barbarez á blaðamannafundinum í gær.
Danski miðillinn Bold greinir frá því að leikmaðurinn hefur nú hringt í Cooper og beðið hann afsökunar á málinu.
Athugasemdir

