Jürgen Klopp, yfirmaður fótboltamála hjá Red Bull samsteypunni, er orðinn þreyttur á orðrómum sem segja hann vera á leiðinni til hinna ýmissu stórvelda víða um Evrópu.
Hann hefur verið orðaður við bæði Madrídarliðin, Real og Atlético, en gefur ekkert fyrir þá orðróma.
„Þið verðið að byrja að sýna smá aga í þessum fréttaflutningi, allar þessar fregnir eru algjört bull. Þeir eru aldrei búnir að hringja í mig, ekki einu sinni! Og þeir eru heldur ekki búnir að hringja í umboðsmanninn minn!" sagði Klopp þegar hann var spurður enn eina ferðina út í þjálfarastarfið hjá Real Madrid, þar sem Álvaro Arbeloa er bráðabirgðaþjálfari út tímabilið, og sló svo á létta strengi.
„Ég tek bara við þeim báðum, helst á sama tíma!"
58 ára gamall Klopp hefur ekki þjálfað fótboltalið í næstum því tvö ár eftir að hann yfirgaf Liverpool sumarið 2024 til að taka við starfinu hjá Red Bull. Gæti hann snúið aftur í þjálfun?
„Miðað við aldur þá er ég í eldri kantinum í lífinu en ég á ennþá eitthvað inni sem þjálfari. Ég er ekki kominn á eftirlaunaaldur. Hver veit hvað gerist á næstu árum? Ég er ekki með nein sérstök áform, en það er aldrei að vita."
11.03.2026 07:00
Var aldrei langtímalausn
Athugasemdir


