Delap, Mainoo, Bastoni, Atubolu, Vicario, Dewsbury-Hall, Guimaraes og fleiri góðir í slúðri dagsins
   sun 22. mars 2026 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalía í dag - Albert fær toppliðið í heimsókn
Mynd: EPA
30. umferð ítalska deildartímabilsins lýkur með fimm leikjum sem verða spilaðir í dag og í kvöld. Landsleikjagluggi tekur svo við þar sem ítalska landsliðið reynir að komast á lokakeppni heimsmeistaramótsins eftir alltof langa fjarveru.

Como byrjar daginn á heimavelli gegn Pisa sem er á góðri leið með að falla beint aftur niður í B-deildina. Como er í meistaradeildarsæti sem stendur og getur komið sér þremur stigum uppfyrir Juventus með sigri í dag. Pisa er níu stigum frá öruggu sæti með níu umferðir eftir af leiktíðinni.

Bologna tekur svo á móti Lazio í spennandi slag á sama tíma og Atalanta spilar við Verona sem er í sömu stöðu og Pisa.

Atalanta er ennþá með í baráttunni um evrópusæti með Bologna og Lazio eru nokkrum stigum á eftir sér.

AS Roma spilar svo við fallbaráttulið Lecce áður en Albert Guðmundsson og félagar í Fiorentina taka á móti toppliði Inter.

Fiorentina er einu stigi fyrir ofan fallsvæðið eftir gott gengi á nýju ári á meðan Inter freistar þess að endurheimta átta stiga forystu í titilbaráttunni.

Leikir dagsins
11:30 Como - Pisa
14:00 Atalanta - Verona
14:00 Bologna - Lazio
17:00 Roma - Lecce
19:45 Fiorentina - Inter
Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 29 22 2 5 65 23 +42 68
2 Napoli 30 19 5 6 46 30 +16 62
3 Milan 29 17 9 3 44 21 +23 60
4 Como 29 15 9 5 48 22 +26 54
5 Juventus 29 15 8 6 51 28 +23 53
6 Roma 29 16 3 10 39 23 +16 51
7 Atalanta 29 12 11 6 40 27 +13 47
8 Bologna 29 12 6 11 38 34 +4 42
9 Lazio 29 10 10 9 29 28 +1 40
10 Udinese 30 11 6 13 35 42 -7 39
11 Sassuolo 29 11 5 13 35 39 -4 38
12 Parma 29 8 10 11 21 36 -15 34
13 Genoa 30 8 9 13 36 42 -6 33
14 Torino 29 9 6 14 32 50 -18 33
15 Cagliari 30 7 9 14 31 42 -11 30
16 Fiorentina 29 6 10 13 34 43 -9 28
17 Lecce 29 7 6 16 21 39 -18 27
18 Cremonese 29 5 9 15 23 44 -21 24
19 Pisa 29 2 12 15 23 49 -26 18
20 Verona 29 3 9 17 22 51 -29 18
Athugasemdir
banner
banner