Robinson, Tonali og Iraola orðaðir við Man Utd - White á förum frá Arsenal? - Rudiger og Kolo Muani til Juve?
   mán 23. mars 2026 10:42
Kári Snorrason
Zidane sagður taka við Frökkum eftir HM
Le Parisien segir ráðninguna nánast frágengna.
Le Parisien segir ráðninguna nánast frágengna.
Mynd: EPA
Zinedine Zidane er sagður taka við sem landsliðsþjálfari Frakklands af Didier Deschamps að loknu HM í sumar.

Franski miðillinn Le Parisien greinir frá því að munnlegt samkomulag sé í höfn og að ráðningin sé nánast frágengin.

Didier Deschamps hefur gefið það út að hann muni ekki að endurnýja samning sinn sem þjálfari Frakka en hann hefur gegnt starfinu í fjórtán ár.

Deschamps vann heimsmeistaramótið með Frökkum árið 2018 og kom liðinu í úrslit í Katar 2022.

Zidane hefur verið sterklega orðaður við starfið frá því að Deschamps gaf út að hann yrði ekki áfram með Frakka. Zidane var síðast stjóri Real Madrid en hætti þar störfum 2021.
Slapp
Athugasemdir
banner
banner
banner