Liverpool leiðir kappið um Camavinga - Flick veit ekki hvað gerist með Rashford - Arsenal þarf að selja - Bruno ánægður hjá Newcastle
banner
   sun 22. mars 2026 16:15
Ívan Guðjón Baldursson
England: Tottenham steinlá á heimavelli
Dýrmætur sigur fyrir Aston Villa
Igor Jesus bauð upp á Dragonball fagn.
Igor Jesus bauð upp á Dragonball fagn.
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Það voru jákvæð teikn á lofti hjá Tottenham Hotspur eftir góða frammistöðu í jafntefli gegn Liverpool í ensku úrvalsdeildinni og sigur í heimaleiknum gegn Atlético Madrid í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í vikunni.

Í dag tók liðið á móti Nottingham Forest í mikilvægum fallbaráttuslag en slæm færanýting kom í bakið á heimamönnum.

Igor Jesus skoraði eina markið í fyrri hálfleik með skalla eftir hornspyrnu frá Neco Williams og gerði Igor Tudor, bráðabirgðaþjálfari Tottenham sem gæti verið rekinn á næstu dögum, tvöfalda skiptingu í leikhlé.

Hún skilaði þó ekki árangri því leikurinn hélt áfram í sama fari. Það ríkti nokkuð jafnræði á vellinum en færanýtingin hjá Tottenham var skelfileg.

Í síðari hálfleik tvöfölduðu gestirnir forystuna þegar Morgan Gibbs-White var skilinn eftir einn og óvaldaður hjá vítapunktinum og skoraði eftir frábæran undirbúning Ola Aina á vinstri vængnum.

Tottenham fékk færi til að minnka muninn en klúðraði og refsuðu gestirnir með þriðja markinu á lokakaflanum. Í þetta sinn skoraði Taiwo Awoniyi, sem kom inn af bekknum, eftir stórkostlega fyrirgjöf frá Williams.

Lokatölur urðu 0-3 og er Tottenham aðeins einu stigi frá fallsæti eftir þetta tap, þökk sé sigri Aston Villa gegn West Ham í leik sem fór fram á sama tíma.

Lærlingar Unai Emery stjórnuðu ferðinni í fyrri hálfleiknum gegn West Ham og voru óheppnir að skora bara eitt mark. John McGinn skoraði það eftir stoðsendingu frá Jadon Sancho og er þetta annar leikurinn í röð sem kantmennirnir tengja saman til að skora. McGinn skoraði með laglegu skoti utan vítateigs eftir einfalda sendingu frá Sancho í kjölfar stuttrar hornspyrnu.

Nuno Espírito Santo gerði tvöfalda breytingu á liði Hamranna í leikhlé og skipti um leið um leikkerfi. Þær breytingar skiluðu sér en West Ham tókst ekki að skora þrátt fyrir góð tækifæri.

West Ham var sterkara liðið í seinni hálfleik en grimmir heimamenn refsuðu á 68. mínútu, þegar Ollie Watkins skoraði með frákasti eftir skyndisókn. Hægt er að setja stórt spurningarmerki við Mads Hermansen sem átti að gera betur þegar hann blakaði lausu skoti frá Morgan Rogers til Watkins.

Meira var ekki skorað og urðu lokatölur 2-0. West Ham er því áfram í fallsæti, einu stigi frá öruggu sæti í úrvalsdeildinni.

Þetta eru gríðarlega dýrmæt stig fyrir Aston Villa sem er í góðri stöðu í meistaradeildarbaráttunni. Liðið er í fjórða sæti, fimm stigum fyrir ofan Liverpool og sex stigum fyrir ofan Chelsea þegar sjö umferðir eru eftir af leiktíðinni.

Tottenham 0 - 3 Nott. Forest
0-1 Igor Jesus ('45 )
0-2 Morgan Gibbs-White ('62 )
0-3 Taiwo Awoniyi ('87 )

Aston Villa 2 - 0 West Ham
1-0 John McGinn ('15 )
2-0 Ollie Watkins ('68 )
Athugasemdir
banner
banner