Delap, Mainoo, Bastoni, Atubolu, Vicario, Dewsbury-Hall, Guimaraes og fleiri góðir í slúðri dagsins
   lau 21. mars 2026 20:58
Ívan Guðjón Baldursson
Óttar skoraði - Hilmir kom inn í góðum sigri
Mynd: SPAL
Mynd: Aðsend
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Óttar Magnús Karlsson var í byrjunarliði Renate og skoraði fyrsta mark leiksins í tapi á heimavelli.

Renate leiddi 1-0 í leikhlé gegn Vicenza en gestirnir stjórnuðu ferðinni í síðari hálfleik og skoruðu þrjú mörk til að snúa stöðunni við og sigra leikinn.

Liðin áttust við í C-deild ítalska boltans og er Renate í harðri umspilsbaráttu um sæti í B-deildinni. Vicenza trónir á toppi deildarinnar með 22 stiga forystu á Brescia sem situr í öðru sæti.

Í B-deildinni var Bjarki Steinn Bjarkason utan hóps þegar Venezia gerði jafntefli við Monza í toppslagnum. Venezia er með þriggja stiga forystu á toppi deildarinnar.

Norsku meistararnir í liði Viking töpuðu óvænt í fyrstu umferð á nýju tímabili í efstu deild en þeir svöruðu fyrir sig með sannfærandi sigri á Molde í dag. Hilmir Rafn Mikaelsson kom inn af bekknum í síðari hálfleik og urðu lokatölur 4-1.

Í Danmörku varði Adam Ingi Benediktsson markið hjá AB sem rúllaði yfir fallbaráttulið Ishöj í þriðju efstu deild. AB er með átta stiga forystu á toppi deildarinnar og stefnir upp.

Í Færeyjum unnu lærlingar Sigurðs Ragnars Eyjólfssonar í NSÍ Runavík þegar þeir fengu Argir í heimsókn. Alex Freyr Elísson lék allan leikinn og er NSÍ með sjö stig eftir þrjár umferðir.

Kjartan Már Kjartansson var ekki í hóp hjá Aberdeen sem steinlá gegn Rangers í skoska boltanum eins og Oliver Stefánsson sem var ekki með Tychy í jafntefli í næstefstu deild í Póllandi. Tychy er í bráðri fallhættu, fimm stigum frá öruggu sæti þegar átta umferðir eru eftir.

Fyrr í dag fóru æfingaleikir fram þar sem Íslendingalið Odd bar sigur úr býtum gegn Strömmen og byrjaði Hinrik Harðarson á bekknum. Logi Hrafn Róbertsson var þá í byrjunarliði Varnamo sem steinlá gegn Örebro á meðan Mikael Neville Anderson byrjaði í sigri Djurgården gegn Degerfors.

Að lokum var Bergrós Ásgeirsdóttir í byrjunarliði Aarau sem vann heimaleik í efstu deild í Sviss. Þetta er afar dýrmætur sigur í fallbaráttunni sem gerir Aarau kleift að lyfta sér úr fallsæti á markatölu.

Renate 1 - 3 Vicenza
1-0 Óttar Magnús Karlsson ('14)
1-1 L. Zonta ('50)
1-2 L. Zonta ('68)
1-3 D. Stuckler ('90)

Monza 1 - 1 Venezia

Viking 4 - 1 Molde

AB 5 - 1 Ishöj

NSÍ 2 - 1 Argir

Rangers 4 - 1 Aberdeen

Polonia Bytom 1 - 1 Tychy

Odd 2 - 1 Strömmen

Varnamo 0 - 3 Örebro

Djurgarden 2 - 1 Degerfors

Aarau 2 - 0 Thun

Athugasemdir