Liverpool leiðir kappið um Camavinga - Flick veit ekki hvað gerist með Rashford - Arsenal þarf að selja - Bruno ánægður hjá Newcastle
   sun 22. mars 2026 17:04
Ívan Guðjón Baldursson
Sandra María hetjan - Emilía í sigurliði
Kvenaboltinn
Mynd: Köln
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sandra María Jessen var hetjan í flottum sigri FC Köln í efstu deild þýska boltans í dag.

Köln heimsótti FC Nürnberg og lagði Sandra fyrsta mark leiksins upp áður en hún tvöfaldaði forystuna sjálf.

Það liðu níu mínútur á milli markanna í fyrri hálfleik og var lítið að frétta í bragðdaufum slag. Heimakonur í Nürnberg náðu þó að minnka muninn á lokamínútunum, en komust ekki nær svo lokatölur urðu 1-2.

Köln siglir lygnan sjó með 28 stig eftir 21 umferð um miðja efstu deild. Þetta er kærkomið mark fyrir Söndru sem var búin að spila sex leiki án þess að skora eða leggja upp eftir frábæra byrjun á tímabilinu. Hún er núna komin með 10 mörk og 2 stoðsendingar í 21 deildarleik.

Ingibjörg Sigurðardóttir var þá í byrjunarliði Freiburg sem heimsótti RB Leipzig og var staðan markalaus eftir jafnan fyrri hálfleik.

Ingibjörgu var kippt af velli í leikhlé og lenti Freiburg í vandræðum í seinni hálfleiknum. Leipzig náði forystunni á 52. mínútu og svo fékk Nicole Ojukwu tvö gul spjöld með átta mínútna millibili til að láta reka sig í sturtu.

Emilía Kiær Ásgeirsdóttir fékk að spila síðustu 25 mínúturnar í liði Leipzig og urðu lokatölur 2-0 fyrir heimakonur.

Leipzig og Freiburg eru um miðja deild eftir þennan slag, Leipzig með 25 stig og Freiburg 30 stig eftir 21 umferð.

Í efstu deild á Ítalíu var Hlín Eiríksdóttir í byrjunarliði Fiorentina sem gerði markalaust jafntefli við Parma. Iris Ómarsdóttir kom inn af bekknum fyrir Hlín snemma í síðari hálfleik en tókst ekki að skora.

Katla Tryggvadóttir sat allan tímann á bekknum og er Fiorentina með 26 stig eftir 17 umferðir, aðeins þremur stigum frá evrópusæti.

Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir er að glíma við meiðsli og hefur því ekki verið í hóp hjá Parma síðan í byrjun febrúar. Parma er í harðri fallbaráttu, þremur stigum fyrir ofan Birtu Georgsdóttur og stöllur í liði Genoa eftir þetta jafntefli.

Að lokum fékk Ásdís Karen Halldórsdóttir að spila síðustu mínúturnar í markalausu jafntefli hjá Braga gegn Rio Ave í Portúgal.

Braga siglir lygnan sjó um miðja deild með 18 stig eftir 14 umferðir.

Nurnberg 1 - 2 Köln
0-1 Laura Donhauser ('19)
0-2 Sandra María Jessen ('28)
1-2 Nastassja Lein ('80)

RB Leipzig 2 - 0 Freiburg
1-0 Julia Landenberger ('52)
2-0 Delice Boboy ('78)

Fiorentina 0 - 0 Parma

Braga 0 - 0 Rio Ave

Slask Wroclaw 3 - 2 Gdansk

Athugasemdir
banner