Lens er afar óvænt með í titilbaráttunni þegar aðeins sjö umferðir eru eftir af franska deildartímabilinu.
Lens situr í öðru sæti deildarinnar sem stendur, einu stigi á eftir ríkjandi Frakklands- og Evrópumeisturum PSG sem eiga leik til góða í þokkabót.
PSG er þó með mikla einbeitingu á Meistaradeildinni þar sem stórveldið reynir að verja titilinn sinn og mætir fráfarandi Englandsmeisturum Liverpool í 8-liða úrslitum.
Leikirnir gegn Liverpool fara fram 8. og 14. apríl en á milli þeirra er titilslagur frönsku deildarinnar gegn Lens á dagskrá laugardaginn 11. apríl.
PSG vill láta færa titilslaginn til að hafa meiri tíma og næði í undirbúningi fyrir 8-liða úrslitin mikilvægu og er Lens einungis tilbúið til þess að samþykkja þessa beiðni ef stjórn frönsku deildarinnar finnur góða lausn á dagatalinu.
Stjórn Ligue 1 stakk upp á að færa leikinn þar til í maí, nokkrum dögum fyrir lokaumferð deildartímabilsins, en það þykir stjórnendum Lens ekki vera nægilega góð dagsetning.
Franska deildin mun funda um málið á fimmtudaginn og taka ákvörðun. Líklegt er að leikurinn fari annað hvort fram 8. apríl, í óþökk PSG, eða 12./13. maí, í óþökk Lens.
20.03.2026 22:47
Frakkland: Lens með skilaboð í titilbaráttunni
Athugasemdir




