Phil Foden kom inn á sem varamaður undir lok leiks Manchester City og Arsenal í úrslitaleik deildabikarsins. Wayne Rooney, fyrrum fyrirliði enska landsliðsins, segir að hann hafi upplifað skiptinguna eins og góðgerðarstarfsemi af hálfu Pep Guardiola, stjóra City.
Foden kom inn á fyrir Rayan Cherki á 90. mínútu þegar City var 2-0 yfir. Foden hefur spilað lítið að undanförnu; verið á eftir Cherki, Antoine Semenyo og Savinho í goggunarröðinni. Foden hefur einungis byrjað fjóra af síðustu þrettán leikjum City.
Foden kom inn á fyrir Rayan Cherki á 90. mínútu þegar City var 2-0 yfir. Foden hefur spilað lítið að undanförnu; verið á eftir Cherki, Antoine Semenyo og Savinho í goggunarröðinni. Foden hefur einungis byrjað fjóra af síðustu þrettán leikjum City.
„Fóbolti er stundum ekki bara bein leið. Það eru hæðir og lægðir og stundum getur þú ekki verið besta útgáfan af sjálfum þér og þannig er það bara. Þetta snýst um hvernig þú kemur til baka. Ég er áfram með höfuðið niðri, reyni að æfa eins vel og ég get á hverjum degi. Vonandi mæti ég aftur mun beittari eftir landsleikina og vonandi fæ ég fleiri mínútur eins og í upphafi tímabils," sagði Foden eftir leikinn.
Foden hefur unnið átján titla sem leikmaður City og er í stóra hópnum hjá Thomas Tuchel fyrir landsleikina gegn Úrúgvæ og Japan. En það er spurning hvort Foden verði í lokahópnum fyrir HM í sumar. Wayne Rooney tjáði sig um stöðu Foden hjá City.
„Mér þótti þetta leitt fyrir hans hönd, en samt ekki leitt því hann kom inn á í bikarúrslitaleik. Það eru nokkrir dagar síðan hann kom ekki einu sinni inn á. Ef þetta hefði verið Max Dowman (16 ára) þá hefði maður hugsað að þetta væri góð reynsla. En að sjá Phil Foden að koma inn á í úrslitaleik, mér leið eins og þetta væri góðgerðarskipting. Ég veit ekki hvað gerðist, hann er toppleikmaður. Það er furðulegt að hann kemst ekki nálægt liðinu. Það er eins og eitthvað hafi gengið á. Mér leið eins og Foden væri að spila vel en allt í einu fékk hann engar mínútur. Ég er ánægður fyrir hans hönd að hann vann bikar en hann hefði viljað geta haft áhrif á leikinn. Þetta var án efa erfitt fyrir hann," sagði Rooney.
Athugasemdir



