Varnarmaðurinn Timothy Fosu-Mensah æfir með Crystal Palace þessa dagana en það eru liðin næstum þrjú ár síðan hann kom síðast við sögu í keppnisleik.
Fosu-Mensah ólst upp hjá Ajax og þótti gríðarlega mikið efni svo hann var fenginn yfir til Manchester United þegar hann var aðeins 16 ára gamall.
Hann lék á láni hjá Crystal Palace tímabilið 2017-18 og var svo sendur á lán til Fulham tímabilið þar á eftir en sleit krossband.
Eftir að tvítugur Fosu-Mensah var búinn að jafna sig eftir krossbandsslitið átti hann í erfiðleikum með að komast inn í liðið hjá Man Utd. Hann hafnaði nýjum samningi frá félaginu og var seldur til Bayer Leverkusen fyrir lága upphæð sex mánuðum fyrir samningslok í Manchester.
Fosu-Mensah var aðeins búinn að vera í Leverkusen í einn og hálfan mánuð þegar hann sleit aftur krossband, í þetta sinn á hinu hnénu.
Þau meiðsli gerðu út af við ferilinn hans áður en hann gat raunverulega byrjað og hefur varnarmaðurinn glímt við mikið af meiðslum alla tíð síðan.
Hann lék í heildina 30 keppnisleiki á fyrstu þremur árunum í Leverkusen en kom ekki við sögu á sínu síðasta tímabili hjá félaginu þegar liðið náði ótrúlegum árangri undir stjórn Xabi Alonso.
Fosu-Mensah var lykilmaður upp yngri landslið Hollands og lék þrjá A-landsleiki áður en hann sleit krossband í fyrsta sinn.
Hann hefur verið samningslaus í tæp tvö ár og vonast til að snúa aftur í fótboltaheiminn ef líkaminn leyfir.
02.03.2021 07:30
Tímabilið búið hjá Fosu-Mensah - Missir líklega af EM
Athugasemdir



