Robinson, Tonali og Iraola orðaðir við Man Utd - White á förum frá Arsenal? - Rudiger og Kolo Muani til Juve?
   mán 23. mars 2026 08:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Gordon eftir tap: Þeir eru ekki mjög gott lið
Mynd: EPA
Anthony Gordon var að vonum mjög pirraður eftir tap Newcastle gegn Sunderland í erkifjendaslag í úrvalsdeildinni um helgina.

Newcastle tapaði 2-1 á St. James' Park um helgina. Liðið var marki yfir í hálfleik eftir að Gordon kom liðinu yfir.

Liðið tapaði einnig fyrri leiknum á útivelli þar sem Nick Woltemade skoraði sjálfsmark í upphafi seinni hálfleiks.

„Það sem er pirrandi er að þeir eru ekki mjög gott lið miðað við okkur. Við ættum ekki að tapa á móti þeim. Það er auðvitað erfiðara á útivelli því þeir eru með stuðningsmennina á ´sinu bandi en við eigum ekki að tapa þessum leik á heimavelli. Ekki miðað við fyrri hálfleikinn en við höfum ekki verið nógu góðir í byrjun seinni hálfleikana," sagði Gordon.
Slapp
Athugasemdir
banner