Daníel Freyr Kristjánsson var í byrjunarliði Fredericia sem vann FC Kaupmannahöfn 2-1 í neðri hlutanum í dönsku deildinni.
Rúnar Alex Rúnarsson var í markinu hjá FCK en liðið hefur tapað báðum leikjum sínum til þessa eftir tvískiptinguna. Viktor Bjarki Daðason kom inn á sem varamaður og fiskaði vítaspyrnu sem Youssoufa Moukoko skoraði og klóraði í bakkann.

FCK er í 8. sæti með 29 stig, tveimur stigum á eftir OB en 7. sætið gefur þátttökurétt í Sambandsdeildinni. Fredericia er í 10. sætii með 27 stig, fjórum stigum frá fallsæti.
Elías Rafn Ólafsson var í byrjunarliði Midtjylland þegar liðið gerði 1-1 gegn Viborg. Midtjylland skoraði annað mark undir lokin en það var dæmt af. Ísak Andri Sigurgeirsson var ónotaður varamaður hjá Viborg.
Hinn 18 ára gamli Tómas Óli Kristjánsson kom inn á sem varamaður undir lokin þegar AGF gerði markalaust jafntefli gegn Bröndby. AGF er á toppnum með 52 stig, Midtjylland er í 2. sæti með 49 stig og Viborg er í 4. sæti með 37 stig.
Athugasemdir