Heimild: 433.is
Ari Leifsson er á leið heim en samkvæmt heimildum 433.is er hann á leið til Vals.
Ari er 27 ára gamall miðvörður og er á mála hjá Kolding í næst efstu deild í Danmörku. Hann hefur aðeins komið við sögðu í tveimur leikjum á tímabilinu og ljóst að hann er ekki inn í myndinni. Hann á fjóra A-landsleiki að baki.

Ari lék með Strömsgodset í efstu deild í Noregi áður en hann skipti yfir til Danmerkur. Hann hefur verið orðaður við Breiðablik og KA en útlit er fyrir, miðað við heimildir 433, að hann sé á leið í Val.
Mikil meiðslavandræði hafa verið í herbúðum Vals í vetur en Markus Nakkim, Orri Sigurður Ómarsson og Bjarni Mark Duffield hafa verið að glíma við meiðsli.
Athugasemdir