Liverpool leiðir kappið um Camavinga - Flick veit ekki hvað gerist með Rashford - Arsenal þarf að selja - Bruno ánægður hjá Newcastle
   sun 22. mars 2026 11:00
Ívan Guðjón Baldursson
„Óheppinn að hafa ekki verið valinn í enska hópinn"
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Thomas Tuchel valdi 35 leikmenn í enska landsliðshópinn fyrir æfingaleiki gegn Úrúgvæ og Japan í komandi landsleikjaglugga.

Það kom á óvart að hinn 35 ára gamli Danny Welbeck var ekki valinn enda hefur hann verið meðal allra bestu leikmanna Brighton á tímabilinu.

Welbeck skoraði bæði mörkin í sigri Brighton gegn Liverpool í gær og er þar með kominn með 12 mörk á úrvalsdeildartímabilinu sem er persónulegt met eftir að hann skoraði 10 mörk í fyrra.

   21.03.2026 13:30
Welbeck gerði það sem bara tveir aðrir hafa gert


Welbeck er kominn með fjögur mörk í síðustu fimm deildarleikjum en var ekki að gera sér neinar vonir fyrir landsliðið. Hann skoraði 16 mörk í 42 landsleikjum á árunum 2011 til 2018 en hefur ekki spilað fyrir England síðan.

„Ég er ekki að hugsa um hluti sem ég hef enga stjórn á," sagði Welbeck eftir sigurinn gegn Liverpool í gær. „Það er mjög jákvætt fyrir mig að það sé verið að tala um nafnið mitt í þessu samhengi.

„Ég vil ekki gefa orku í hluti sem ég get ekki stjórnað. Ég er mjög ánægður þar sem ég er, ég er að einbeita mér að fótboltanum og að hugsa um hvernig ég get bætt mig."


Fabian Hürzeler þjálfari Brighton er gríðarlega ánægður með framlag Welbeck.

„Hann er ekki bara að skora mörk, hann er rosalega mikilvægur fyrir uppbyggingu sókna hjá okkur. Hann tengir miðjuna mjög vel við sóknina og er mikill liðsmaður. Hann er rosalega mikilvægur fyrir okkur bæði innan og utan vallar, ég veit ekki hvað við myndum gera án hans. Danny er svo gæðamikill að hann gæti hjálpað hvaða landsliði sem er í heiminum."

Wayne Rooney hrósaði einnig Welbeck og sagðist telja hann vera óheppinn að hafa ekki verið valinn í 35-manna landsliðshópinn. Rooney og Welbeck voru samherjar hjá Manchester United sem er uppeldisfélag Welbeck.

„Hann getur allt. Hann skorar mörk, hleypur mikið og tengir liðið mjög vel saman. Hann er klárlega möguleiki fyrir enska landsliðið," sagði Rooney. „Welbeck er mjög óheppinn að fá ekki landsliðskallið í þessum glugga. Ég held að valið hafi verið á milli hans og Dominic (Calvert-Lewin)," sagði Rooney.

Alan Shearer tók í svipaða strengi og telur Welbeck enn vera með í baráttunni um sæti í enska hópnum sem varaskeifa fyrir hinn markaóða Harry Kane.

   21.03.2026 16:16
Einkunnir Brighton og Liverpool: Welbeck stórkostlegur

Athugasemdir
banner