Sky Sports er búið að gefa leikmönnum einkunnir eftir leiki dagsins í ensku úrvalsdeildinni.
Portúgalski framherjinn Beto var besti maður vallarins er Everton tók Chelsea í kennslustund. Hann skoraði tvennu og fær 9 í einkunn, alveg eins og liðsfélagar sínir James Garner og Jordan Pickford.
Garner átti stórleik á miðjunni á meðan Pickford varði meistaralega í tvígang til að hjálpa Everton að landa fræknum 3-0 sigri.
Robert Sánchez markvörður Chelsea er titlaður sem skúrkurinn og fær 4 í einkunn fyrir slaka frammistöðu. Aðrir leikmenn byrjunarliðsins fá allir 5 í einkunn nema Malo Gusto og Cole Palmer sem voru bestir í gestaliðinu.
Kantmaðurinn Harry Wilson, sem rennur út á samningi í sumar, var þá besti maður vallarins í endurkomusigri Fulham gegn fallbaráttuliði Burnley.
Wilson fær 9 í einkunn á meðan liðsfélagar hans Joshua King og Timothy Castagne fá áttur. King var gríðarlega sprækur í dag þar sem hann skoraði og lagði upp.
Í liði Burnley var Zian Flemming bestur með 8 í einkunn og var Kyle Walker meðal þriggja leikmanna liðsins sem fengu 7 fyrir sinn þátt í tapinu.
Að lokum virðist Sky hafa neitað að breyta einkunnum leikmanna í leiðinlegu markalausu jafntefli hjá Leeds United gegn Brentford. Allir fá 6 fyrir sinn þátt.
Everton: Pickford (9), O’Brien (7), Tarkowski (7), Keane (7), Mykolenko (7), Gueye (8), Garner (9), Dewsbury-Hall (7), McNeil (7), Ndiaye (8), Beto (9).
Varamenn: Branthwaite (6), Barry (6)
Chelsea: Sanchez (4), Gusto (6), Fofana (5), Hato (5), Cucurella (5), Caicedo (5), Lavia (5), Palmer (6), Enzo (5), Neto (5), Joao Pedro (5).
Varamenn: Garnacho (5), Andrey Santos (6), Estevao (6), Delap (6), Adarabioyo (6)
Fulham: Leno (6), Castagne (8), Andersen (6), Bassey (7), Robinson (7), Iwobi (7), Berge (6), Wilson (9), King (8), Bobb (7), Muniz (7)
Varamenn: Reed (6), Jimenez (7), Chukwueze (6), Sessegnon (7), Smith Rowe (6)
Burnley: Dubravka (6), Walker (7), Humphreys (6), Esteve (6), Hartman (6), Mejbri (6), Laurent (6), Ward-Prowse (6), Foster (7), Anthony (7), Flemming (8)
Varamenn: Ugochukwu (6), Edwards (6), Tchaouna (6), Barnes (6)
Leeds: Darlow (6), Bogle (6), Rodon (6), Bijol (6), Struijk (6), Justin (6), Stach (6), Ampadu (6), Aaronson (6), Nmecha (6), Calvert-Lewin (6)
Varamenn: James (6), Okafor (6), Tanaka (6)
Brentford: Kelleher (6), Kayode (6), Collins (6), Van den Berg (6), Pinnock (6), Yarmoliuk (6), Henderson (6), Jensen (6), Schade (6), Thiago (6), Lewis Potter (6)
Varamaður: Ouattara (6)
Athugasemdir
