Það eru tveir leikir sem hefjast samtímis í ensku úrvalsdeildinni eftir rétt tæpa klukkustund og hafa byrjunarliðin verið staðfest.
Tottenham tekur á móti Nottingham Forest í afar eftirvæntum fallbaráttuslag tveggja liða sem komust bæði í útsláttarkeppni í Evrópu og telja sig ekki eiga heima nálægt fallsvæðinu.
Igor Tudor þjálfari Tottenham gerir þrjár breytingar á byrjunarliðinu sem lagði Atlético Madrid að velli í miðri viku, en sá sigur dugði ekki til að komast áfram í næstu umferð Meistaradeildarinnar. Kevin Danso kemur inn í varnarlínuna fyrir Radu Dragusin og þá eru Dominic Solanke og Richarlison í byrjunarliðinu, en Xavi Simons og Randal Kolo Muani setjast á bekkinn. Simons var besti maður vallarins í sigrinum gegn Atlético.
Leikmenn Tottenham eru að koma aftur úr meiðslum og er Joao Palhinha kominn aftur á bekkinn eftir að hafa fengið heilahristing.
Guglielmo Vicario er á milli stanga Tottenham en hann fer í aðgerð eftir helgi og missir af næstu leikjum eftir landsleikjagluggann. Ekki var ljóst hvort hann myndi spila leikinn eða Antonín Kinský, sem varði síðast mark Tottenham í hrikalegu tapi gegn Atlético í Madríd. Kinský fékk þrjú mörk á sig snemma leiks og átti sjálfur sökina á tveimur þeirra, sem varð til þess að Tudor kippti honum af velli og var gagnrýndur harkalega fyrir.
Vítor Pereira þjálfari Nottingham Forest breytti nánast öllu byrjunarliðinu á milli úrvalsdeildarinnar og Evrópudeildarinnar, þar sem Forest lagði Midtjylland að velli í miðri viku.
Hann gerir þó aðeins eina breytingu á byrjunarliði Forest á milli úrvalsdeildarleikja, þar sem Omari Hutchinson kemur inn í byrjunarliðið fyrir Nicolás Domínguez.
Aston Villa spilar þá við West Ham United og gerir Unai Emery fimm breytingar á byrjunarliðinu sem lagði Lille að velli í Evrópudeildinni í miðri viku.
Ollie Watkins, Matty Cash, Ezri Konsa, Lucas Digne og Ross Barkley koma allir inn í byrjunarliðið. Þá er Youri Tielemans kominn aftur úr meiðslum og sest á bekkinn.
Á sama tíma teflir Nuno Espírito Santo fram sama byrjunarliði og náði jafntefli gegn Manchester City um síðustu helgi.
Tottenham: Vicario; Danso, Romero, Van de Ven; Porro, Gray, Sarr, Spence; Tel, Richarlison; Solanke.
Varamenn: Kinsky, Dragusin, Palhinha, Simons, Udogie, Bergvall, Gallagher, Souza, Kolo Muani.
Nott. Forest: Sels, Williams, Murillo, Milenkovic, Aina, Sangare, Anderson, Gibbs-White, Hutchinson, Hudson-Odoi, I.Jesus
Varamenn: Ortega, Morato, Awoniyi, Ndoye, Dominguez, Yates, McAtee, Netz, Bakwa
Aston Villa: Martinez; Cash, Konsa, Torres, Digne; Barkley, Onana; Sancho, Rogers, McGinn; Watkins.
Varamenn: Bizot, Maatsen, Bogarde, Mings, Tielemans, Luiz, Buendia, Bailey, Abraham.
West Ham: Hermansen; Mavropanos, Disasi, Todibo; Wan-Bissaka, Soucek, Fernandes, Diouf; Bowen, Castellanos, Pablo.
Varamenn: Areola, Walker-Peters, Kilman, Wilson, Traore, Magassa, Scarles, Potts, Kante.
Athugasemdir


