Nú þegar karlarnir eru uppteknir í landsleikjaglugga er mikið fjör í útsláttarkeppni Meistaradeildar kvenna.
Það eru gríðarlega spennandi leikir á dagskrá í dag og í kvöld þegar Wolfsburg og Arsenal eiga heimaleiki í 8-liða úrslitum.
Tvö af allra bestu liðum Evrópu fyrir nokkrum árum síðan eigast við þegar Wolfsburg fær Lyon í heimsókn, áður en ríkjandi Evrópumeistarar Arsenal taka á móti Chelsea í Lundúnaslag.
Liðin eigast við í fyrri leikjunum í dag og fara seinni leikirnir fram í næstu viku.
Leikir dagsins
17:45 Wolfsburg W - Lyon W
20:00 Arsenal W - Chelsea W
Athugasemdir


