Manchester United ætlar óvænt að reyna að fá enska vinstri bakvörðinn Myles Lewis-Skelly frá Arsenal
   mán 23. mars 2026 09:01
Elvar Geir Magnússon
Breiðablik sendi út yfirlýsingu vegna hlaðvarpsumræðu
Gabríel Aron Sævarsson.
Gabríel Aron Sævarsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Breiðablik sendi frá sér yfirlýsingu í gær varðandi umræðu um Gabríel Aron Sævarsson, tvítugan sóknarmann liðsins.

433.is skrifaði frétt upp úr umræðu í hlaðvarpsþættinum Þungavigtin þar sem Kristján Óli Sigurðsson fullyrti að leikmenn Breiðabliks hefðu kallað eftir því að Gabríel Aron færi frá félaginu. Hann sagði að þeir teldu hann ekki nógu góðan og það væri ástæða þess að hann væri nú farinn að láni til Hauka.

Fréttin hefur verið fjarlægð en í tilkynningu Breiðabliks segir að umfjöllunin eigi ekki við nein rök að styðjast.

Yfirlýsing Breiðabliks
Í kjölfar umfjöllunar um Gabríel Aron Sævarson, einn af okkar ungu leikmönnum, finnur félagið sig knúið til að verja heiður leikmannsins og félagsins. Ekkert af því sem kom fram í umræddu hlaðvarpi og grein í DV varðandi ástæðu og aðdraganda þess að Gabríel Aron fór á lán á við rök að styðjast.

Frá því að Gabríel Aron kom til Breiðabliks var hugmyndin að lána hann í neðri deild, þar sem hann myndi öðlast mikilvæga reynslu og spilatíma. Hann hefur æft með liðinu af fullum krafti og staðið sig vel. Það er mjög algengt að ungir leikmenn fari á lán og hafa margir af okkar lykilleikmönnum gert það og hlotið af því mikilvæga reynslu.

Fyrrgreind umfjöllun á ekki við nein rök að styðjast og er engum til framdráttar.

Knattspyrnudeild Breiðabliks

Athugasemdir
banner
banner