Delap, Mainoo, Bastoni, Atubolu, Vicario, Dewsbury-Hall, Guimaraes og fleiri góðir í slúðri dagsins
   sun 22. mars 2026 09:30
Ívan Guðjón Baldursson
Pepi stóðst læknisskoðun en félagaskiptin eru í hættu
Mynd: EPA
Fulham hefur verið á höttunum eftir bandaríska framherjanum Ricardo Pepi og virtist samkomulag loksins vera í höfn á dögunum.

Fulham hefur verið að reyna að kaupa framherjann úr röðum PSV Eindhoven og greindu fjölmiðlar frá því í vikunni að samkomulag um kaupverð hefði náðst á milli félagsliðanna.

Pepi stóðst læknisskoðun hjá Fulham á dögunum en nú eru félagaskiptin í hættu samkvæmt Rik Elfrink, hollenskum fréttamanni sem fylgist náið með málum PSV.

Ástæðan er samkomulag um tryggingu gegn alvarlegum meiðslum.

Fulham vill að ábyrgðin liggi hjá PSV, þannig ef Pepi lendir í alvarlegum meiðslum meðan hann er ennþá leikmaður PSV þá vill enska félagið getað hætt við félagaskiptin til að fá ekki alvarlega meiddan leikmann til sín yfir sumarið.

PSV virðist hins vegar ekki vera reiðubúið til að samþykkja þessa ábyrgð. Hollenska stórveldið vill ekki gefa Fulham möguleika á að hætta við kaupin.

   18.03.2026 09:30
Fulham og PSV ná samkomulagi um Pepi

Athugasemdir
banner