Robinson, Tonali og Iraola orðaðir við Man Utd - White á förum frá Arsenal? - Rudiger og Kolo Muani til Juve?
   mán 23. mars 2026 05:55
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ísland í dag - Reykjavíkurslagur í undanúrslitum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Seinni undanúrslitaleikurinn í A-deild Lengjubikars kvenna fer fram í kvöld. Reykjavíkurliðin Þróttur og Víkingur mætast.

Liðin keppast um að komast í úrslitaleikinn þar sem Breiðablik bíður. Breiðablik vann öruggan 6-1 sigur á Stjörnunni í hinum undanúrslitaleiknum.

Þá er einn leiikur í riðli eitt í C-deild þar sem KÞ fær Fjölni í heimsókn. Fjölnir er með eitt stig eftir einn leik en KÞ er án stiga eftir að hafa spilað tvo leiki.

mánudagur 23. mars

Lengjubikar kvenna - A-deild úrslit
18:00 Þróttur R.-Víkingur R. (AVIS völlurinn)

Lengjubikar kvenna - C-deild, riðill 1
20:00 KÞ-Fjölnir (AVIS völlurinn)
Slapp
Athugasemdir
banner