Manchester United ætlar óvænt að reyna að fá enska vinstri bakvörðinn Myles Lewis-Skelly frá Arsenal
   mán 23. mars 2026 14:37
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Freyr kallaður inn í U21 vegna meiðsla
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Freyr Sigurðsson, leikmaður Fram, hefur verið kallaður inn í U21 landsliðshópinn vegna meiðsla sem komu upp um helgina.

Jóhannes Kristinn Bjarnason, leikmaður Víkings, meiddist og getur ekki verið með gegn Eistum og Frökkum.

Freyr hefur ekki spilað með U21 til þessa en var í hóp á síðasta ári.

Hornfirðingurinn átti gott tímabil með Fram í fyrra, skoraði eitt mark í 20 leikjum í Bestu deildinni.

Ísland mætir Eistum á AVIS vellinum á fimmtudag og svo heldur liðið til Frakklands.
Landslið karla - U21 - Undankeppni EM
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Frakkland 4 3 0 1 14 - 2 +12 10
2.    Færeyjar 6 3 3 0 6 - 12 -6 9
3.    Sviss 5 2 1 2 7 - 4 +3 8
4.    Ísland 5 2 1 2 7 - 5 +2 8
5.    Lúxemborg 5 1 3 1 6 - 9 -3 4
6.    Eistland 5 0 3 2 5 - 13 -8 2
Athugasemdir
banner
banner