„Þetta var hörkuleikur, mikil ákefð í leiknum og maður skynjaði að alvaran er að fara að byrja. Ég er mjög sáttur með þennan leik,“ sagði Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings Reykjavíkur, eftir 3-1 sigur á Stjörnunni í úrslitaleik Bose mótsins í Miðgarðinum.
Lestu um leikinn: Stjarnan 1 - 3 Víkingur R.
Víkingar mættu FH-ingum fyrr um daginn í æfingaleik, hver var pælingin með það?
„Pælingin er að allir fái sínar mínútur og séu á sama stað fyrir mót. Það er mikil samkeppni í liðinu og mikilvægt að allir fái jöfn tækifæri. Þetta heppnaðist mjög vel á þessum tímapunkti.“
Víkingar unnu FH 3-0 en Sölvi var ánægður með þann leik sem og leikinn við Stjörnuna.
„3-0 sigur og flott frammistaða. Ég er hrikalega ánægður með báða leikina. Ég óskaði eftir því að menn myndu sína að það er mikil samkeppni, það fer að nálgast í mót, og ég fékk það frá báðum liðum í dag. Þeir gera mér virkilega erfitt fyrir að velja í liðið fyrir næstu leiki.“
Sölvi er sáttur með liðið þegar það er styttra og styttra í mót.
„Auðvitað er það þannig að við erum alltaf að læra og bæta okkur því lengra sem líður á mótið. En ég er mjög sáttur með staðinn sem við erum á í dag. Grunnatriðin, sem sást í dag, eru til staðar og ég er mjög sáttur með það.“
Valdimar meiddist undir lok leiks og bað um skiptingu en hann kláraði víst leikinn.
„Það var allt í lagi með hann. Hann fékk hnjask þarna og það var lítið eftir, ég sá enga aðra ástæðu að hann ætti ekki að halda áfram á vellinum. Svo ég viti er ekkert að honum sem eru góðar fréttir.“
Viðtalið við Sölva í heild sinni má sjá í spilaranum hér að ofan.
Athugasemdir























