Swansea 0 - 3 Coventry
0-1 Brandon Thomas-Asante ('32 , víti)
0-2 Matt Grimes ('38 )
0-3 Tatsuhiro Sakamoto ('43 )
0-1 Brandon Thomas-Asante ('32 , víti)
0-2 Matt Grimes ('38 )
0-3 Tatsuhiro Sakamoto ('43 )
Coventry City er komið með annan fótinn upp í ensku úrvalsdeildina eftir flottan sigur á útivelli gegn Swansea í dag.
Coventry vann þriggja marka sigur þar sem öll mörkin komu á ellefu mínútna kafla í fyrri hálfleik.
Leikurinn var nokkuð jafn og skemmtilegur en gestirnir nýttu færin sín umtalsvert betur til að tryggja sigur.
Coventry er með níu stiga forystu á toppi Championship deildarinnar þegar sjö umferðir eru eftir. Svanirnir sigla lygnan sjó um miðja deild.
Athugasemdir

