Birkir Bjarnason var leikmaður tyrkneska félagsins Adana Demirspor á árunum 2021-23. Hann kom frá ítalska félaginu Brescia og fór til Viking í Noregi eftir tímann í Tyrklandi.
Birkir, sem er leikjahæsti leikmaður íslenska landsliðsins í sögunni með 113 landsleiki, lagði skóna á hilluna á síðasta ári. Hann var til viðtals í ChessAfterDark og ræddi m.a. um tímann í Tyrklandi og hans kynni af Marokkóanum Younes Belhanda sem hafði komið sama ár til Adana - frá Galatasaray.
Birkir, sem er leikjahæsti leikmaður íslenska landsliðsins í sögunni með 113 landsleiki, lagði skóna á hilluna á síðasta ári. Hann var til viðtals í ChessAfterDark og ræddi m.a. um tímann í Tyrklandi og hans kynni af Marokkóanum Younes Belhanda sem hafði komið sama ár til Adana - frá Galatasaray.
Birkir var ekki ýkja spenntur fyrir því að fara til Adana og neitaði fyrsta tilboði félagsins. „Eftir það höfðu þeir samband í hverri viku í fimm vikur, tilboðið alltaf betra og betra og fleiri og fleiri leikmenn búnir að skrifa undir. Balotelli kom svo að lokum. Ég var í Noregi í fimm vikur, kíki á tvö lið á Ítalíu en leist ekki á það," segir Birkir sem lét til leiðast og samdi við Adana eftir samtal við norskan leikmann sem hafði skrifað undir hjá félaginu.
Birkir var spurður hvort að lífið í Tyrklandi hafi verið allt í lagi?
„Þetta var ekkert sérstakt tímabil utan vallar, en innan vallar var þetta frábær tími, tyrkneskir stuðningsmenn geggjaðir. Við spiluðum þarna með landsliðinu og það heillaði mjög mikið. Við vorum að berjast um Evrópusæti allt tímabilið, klúðruðum því á lokasprettinum."
Birkir fékk alltaf greitt á réttum tíma fyrsta árið hjá félaginu. Hann tók hálft tímabil í viðbót hjá félaginu.
„Ég átti frábært fyrsta tímabil, en kom seint um sumarið. Þá var búið að fá Belhanda sem hafði verið fyrirliði Galatasaray. Hann átti að vera í þessari stöðu (í tíunni fyrir aftan Mario Balotelli), en svo kom ég. Ég spilaði eiginlega allt tímabilið, hann var mikið á bekknum og í meiðslum. Hann er Marokkói, með skap. Það voru fimm dagar í fyrsta leik á tímabilinu 2022/23, við vorum á æfingu og spiluðum 5 gegn 5. Ég var að pressa hann, hann fær boltann, fer svolítið frá mér og fær högg frá öðrum. Hann kemur svo til baka og ég er að pressa hann. Hann snýr sér við og setur takkana í nárann á mér og svo neglir hann í kjálkann á mér eins fast og hann gat," segir Birkir sem fór niður í grasið. Birkir ætlaði að æða í Belhanda en samherjar hans stoppuðu hann.
„Okkur var haldið frá hvor öðrum. (Vincenzo) Montella var þjálfari og þykist ekki hafa séð þetta. Belhanda var sendur á bekkinn á æfingasvæðinu og æfingin hélt áfram. Ég vissi eiginlega ekki hvar ég var, var ekki að trúa hvað hefði gerst. Að lokum flautaði Montella æfinguna af því það voru allir í sjokki. Við förum inn og svo komu varaforsetinn og íþróttastjórinn (e. sporting director) upp á herbergi til mín og afsaka þetta, segja að þetta ekki eigi ekki að gerast og spyrja hvernig ég væri. Þeir grátbiðja mig um að fyrirgefa honum, koma með ræðuna að við séum allir bræður og fjölskylda. Ég sagði nei, það væri ekki séns að ég væri að fara fyrirgefa þetta: „Ef ég sé hann á æfingu þá brýt ég lappirnar á honum," sagði ég við þá. Þeir reyndu að róa mig niður og fóru svo. Þeir segja við mig að hann hafi verið sendur heim, veit ekki hvort það var rétt, en þeir sögðu það."
„Svo kemur forsetinn og talar við okkur leikmenn. Hann tekur ræðuna, segir að hann hafi verið sendur heim og komi ekki til baka. Það standa flestallir leikmenn upp og segja að þeir vilji ekki sjá hann aftur, þetta sé ekki í lagi. Það voru nokkrir í vinahóp hans, Frakkahópur. Forsetinn endar svo á því að segja að ég þurfi að ákveða hvort og hvenær Belhanda komi til baka, þessu hent á mig. Ég sagði ekki neitt, var í sjokki. Svo byrjaði ég að vera svolítið smeykur, því tímabilið áður var hann búinn að vera í rifrildi við annan í liðinu. Belhanda var þá sendur inn í klefa og beið þar með hníf. Ég byrjaði að hugsa út í það atvik."
„Um morguninn fæ ég skilaboð frá íþróttastjóranum hvort ég væri búinn að hugsa þetta og búinn að ákveða mig. Ég var það ekki: „Mér finnst ekki í lagi að þið hafið sett þessa pressu á mig og er ekkert að fara ákveða eitt né neit." Ég er beðinn um að fyrirgefa honum, tímabilið sé að byrja og mikilvægur leikur eftir þrjá daga. Ég sagði nei, ég væri ekki að fara fyrirgefa honum, ekki að fara æfa með honum aftur. Þá segir íþróttastjórinn að það þurfi að taka aðra ákvörðun, hann þurfi að tala við forsetann. Þetta hljómaði eins og ég væri allt í einu sökudólgurinn. Ég var í sjokki, hringdi í umboðsmanninn og í sameiningu ákveðum að leyfa þeim að ákveða þetta sjálfir. Ég sendi skilaboð á þá að þeir myndu taka ákvörðun. Svo var Belhanda kominn á æfingu eftir nokkra tíma, baðst reyndar afsökunar. Ég myndi ekki halda að það hafi komið frá hjartanu, en ég hafði engan áhuga á að tala við hann og þ.a.l. var þetta mjög erfitt af því hann var svolítið stór í Tyrklandi og sérstaklega hjá forsetanum. Eftir þetta spilaði ég nánast ekki neitt og Belhanda var í liðinu."
Birkir byrjaði einungis tvo deildarleiki og þrjá bikarleiki það sem eftir var tímans hjá Adana eftir að hafa verið í mjög stóru hlutverki tímabilið á undan.
Farinn hálfur ári seinna
Birkir kom næst að endalokunum hjá Adana. Snemma árs 2023 reið mjög stór jarðskjálfti yfir Tyrkland og Sýrland.
„Deildin var stoppuð, við fórum í viku og kærasta mín setur út Instagram færslu, hún hafði verið í Adana á meðan jarðskjálftinn var og upplifði þetta. Við vorum að spila þá í Istanbúl. Þegar við vorum heima (ekki í Tyrklandi) setur hún út að hún ætlaði ekki að fara til baka til Adana. Það fór rosalega í forsetann og eftir það fæ ég skilaboð frá íþróttastjóranum að ég sé ekki velkominn aftur og ef ég kæmi þá fengi ég ekki hótelherbergi þar sem liðið var í Antalya. Þannig endaði mitt tímabil í Tyrklandi og ég fór svo til Noregs í kjölfarið."
„Atvikið á æfingasvæðinu átti sér stað í ágúst, ég reyndi að komast í burtu október-janúar en fékk ekki að fara þó ég væri ekkert að spila, mér var sagt að ég væri í uppáhaldi hjá forsetanum. Svo fáum við símtal frá íþróttastjóranum kvöldið áður en glugganum var lokað að ég mætti fara."
Birkir telur að Belhanda hafi farið í sig út af því Birkir var að spila í hans stöðu. „Ég fann fyrir því að hann var svolítið smeykur við mig á æfingum eftir að þetta gerðist, þeir greinilega sögðu við hann hvað ég hefði sagt við varaforsetann."
Birkir segist ekki hafa fengið allt greitt sem hann hafi átt að fá frá Adana og býst ekki við því að fá það greitt úr þessu.
Athugasemdir



