Það eru tveir mjög svo áhugaverðir leikir í Meistaradeild kvenna þennan miðvikudaginn.
Við erum komin fram í 8-liða úrslit keppninnar.
Við erum komin fram í 8-liða úrslit keppninnar.
Fyrri leikur dagsins hefst klukkan 17:45 þar sem Real Madrid tekur á móti erkifjendum sínum í Barcelona. Síðarnefnda liðið er mun líklegri aðilinn fyrir það einvígi.
Svo klukkan 20:00 mætir landsliðsfyrirliðinn okkar, Glódís Perla Viggósdóttir, til Manchester og mætir þar United. Glódís og stöllur hennar í Bayern München geta klárlega gert sér vonir um að komast áfram úr því einvígi.
Liðin eigast við í fyrri leikjunum í dag og fara seinni leikirnir fram í næstu viku.
miðvikudagur 25. mars
17:45 Real Madrid W - Barcelona W
20:00 Man Utd W - Bayern W
Athugasemdir



