Bruno sagður falur fyrir 60 milljónir punda - Sancho aftur til Dortmund - Zidane tekur við Frökkum - De Zerbi til Spurs
   þri 24. mars 2026 17:00
Kári Snorrason
KSÍ skorar á yfirvöld íþróttamála, sveitarfélaga, ÍSÍ og UMFÍ
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Mynd: Samúel Samúelsson
Á ársþingi KSÍ á Egilsstöðum í lok febrúar var samþykkt áskorun til yfirvalda íþróttamála, sveitarfélaga, ÍSÍ og UMFÍ um að grípa til markvissra aðgerða til að jafna aðstöðumun íþróttafólks á landsbyggðinni.

Meðal annars á að jafna muninn með því að mæta þeim ferðakostnaði sem félög og foreldrar standa frammi fyrir.

Áskorunin í heild sinni:
Áskorun til yfirvalda íþróttamála, sveitarfélaga, ÍSÍ og UMFÍ
Í aðdraganda ársþings KSÍ sem haldið var á Egilsstöðum þann 28. febrúar 2026, var haldið málþing um ferðakostnað félaga af landsbyggðinni.

Á málþinginu voru lagðar fram sláandi upplýsingar um verulega háan kostnað félaga og fólks á landsbyggðinni vegna þátttöku og ferða knattspyrnuliða í mótum. Á fundinum var lýst yfir verulegum áhyggjum af þeirri staðreynd að börn á landsbyggðinni búi við skert jafnrétti til íþróttaiðkunar vegna ferðakostnaðar, vinnutaps foreldra og fjarveru barna frá námi.

Á það var bent að félög hafi neyðst til að velja ódýrari og óöruggari ferðamáta, þar sem foreldrar keyra bíla yfir fjallvegi og langar vegalengdir. Ástæða þess er að opinberir ferðasjóðir duga ekki fyrir öruggari samgöngum í flugi eða rútum sem ekið er af reyndum bílstjórum.

Einnig var bent á að af landsbyggðinni hafi um áratugi skilað sér öflugt afreksfólk sem hafi þrátt fyrir kostnaðar- og aðstöðumun, komist í fremstu röð íþróttafólks á Íslandi.

Til þess að tryggja börnum jafnræði til þátttöku í íþróttum, óháð búsetu og á þann hátt að öryggi þeirra sé í fyrirrúmi, skorar stjórn KSÍ / 80. ársþing KSÍ á yfirvöld íþróttamála, sveitarfélög, ÍSÍ og UMFÍ að taka höndum saman um markvissar aðgerðir til að jafna augljósan aðstöðumun íþróttafólks á landsbyggðinni með því að mæta þeim ferðakostnaði sem íþróttafélög og foreldrar á landsbyggðinni glíma við.
Með markvissum aðgerðum má tryggja börnum á landsbyggðinni jafnræði til þátttöku í íþróttum án tillits til efnahags félags eða foreldra, um leið og ferðir barna um langan veg, verði eins öruggar og kostur er. Með samstilltu átaki mun árangurinn skila sér í öflugum einstaklingum og án vafa sem fyrr, afreksfólki sem eftir verður tekið.

Fyrir hönd Knattspyrnusambands Íslands,
Eysteinn Pétur Lárusson, framkvæmdastjóri
Athugasemdir
banner