Idrissa Gueye, miðjumaður Everton og Senegal, segir að ákvörðunin um að taka Afríkukeppnistitilinn af Senegal og dæma Marokkó sigurinn sé einfaldlega fáránleg.
Gueye leynir ekki skoðun sinni á málinu og gagnrýnir niðurstöðuna harðlega.
Gueye leynir ekki skoðun sinni á málinu og gagnrýnir niðurstöðuna harðlega.
„Mér finnst þessi ákvörðun bara fáránleg," segir Gueye.
„Við vitum hvað við gerðum og hvað við upplifðum. Enginn getur tekið það frá okkur. Ég held að ef þú spilar leikinn tíu sinnum, þá vinnum við hann tíu sinnum."
Afríska fótboltasambandið svipti Senegal titilinum í síðustu viku eftir að liðið ákvað að ganga af velli til að mótmæla umdeildri vítaspyrnu sem Marokkó fékk í úrslitaleiknum sem spilaður var um miðjan janúar.
Senegalar segja að niðurstaðan sé vanvirðing við afrískan fótbolta og hún verði kærð til CAS, Alþjóða íþróttadómstólsins í Lausanne, en það er æðsta dómstig íþrótta í heiminum.
Af hverju var Senegal svipt titlinum?
Brahim Diaz, leikmaður Marokkó, féll niður í teignum í blálokin í úrslitaleiknum. Dómarinn hélt leiknum áfram en að lokum dæmdi VAR vítaspyrnu. Það var vægast sagt mikið ósætti hjá Senegal með atvikið og Pape Thiaw, þjálfari Senegal, skipaði leikmönnum liðsins að fara inn í klefa í mótmælaskyni.
Marokkó kærði úrslit leiksins og áfrýjunarnefnd afríska sambandsins hefur komist að þeirri niðurstöðu að hegðun senegalska liðsins hafi brotið gegn reglugerðum. Með því að yfirgefa leikinn eigi að dæma liðinu tap og Marokkó hefur verið dæmdur 3-0 sigur.
Athugasemdir

