Bruno sagður falur fyrir 60 milljónir punda - Sancho aftur til Dortmund - Zidane tekur við Frökkum - De Zerbi til Spurs
   mið 25. mars 2026 07:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ferdinand leggur línurnar - Vill fjóra nýja leikmenn
Rio Ferdinand.
Rio Ferdinand.
Mynd: EPA
Rio Ferdinand, fyrrum varnarmaður Manchester United, hefur kallað eftir því að United styrki sig með fjórum nýjum leikmönnum í sumar.

Að styrkja miðjuna er talið forgangsverkefni hjá Man Utd og Ferdinand tekur undir það.

Ferdinand sagði í hlaðvarpi sínu:

„Ef United fær fjóra nýja leikmenn í næsta félagaskiptaglugga og tveir þeirra fara beint í byrjunarliðið, þá tel ég það vera raunhæfan glugga. Ef ég væri stjórna hjá félaginu myndi ég setja forgang á tvo miðjumenn, einn sem kemur beint inn í byrjunarliðið og svo kannski yngri leikmann sem hægt er að þróa smám saman í kringum Bruno Fernandes, Kobbie Mainoo og þann sem verður keyptur."

„Ég myndi líka sækja annan framherja, yngri leikmann sem yrði meira varamaður fyrir þá sem eru fyrir hjá félaginu. Svo myndi ég sækja bakvörð."

Á meðal miðjumanna sem hafa verið orðaðir við Man Utd eru Carlos Baleba, Elliot Anderson, Adam Wharton, Sandro Tonali og Bruno Guimaraes.
Athugasemdir
banner
banner