Svíinn Kim Hellberg hefur vakið nokkra athygli frá því hann mætti til Englands í nóvember á síðasta ári. Hann tók þá við Middlesbrough eftir að hafa stýrt Hammarby og Varnamo í Svíþjóð með góðum árangri.
Undir stjórn Hellberg er Middlesbrough í bullandi baráttu um að komast upp í ensku úrvalsdeildina. Liðið er sem stendur í öðru sæti Championship.
Hellberg hefur ekki bara vakið athygli fyrir góðan árangur því hann hefur einnig vakið athygli utan vallar á hliðarlínunni fyrir fatastíl sinn.
Svíinn fær ágætlega borgað hjá Middlesbrough en í leik gegn Blackburn á dögunum var hann þó í býsna ódýrri flík. Hann var nefnilega í peysu úr H&M sem er á afslætti um þessar mundir í búðum á Bretlandseyjum og kostar 11 pund, eða rúmar 1800 krónur.
Glöggir netverjar tóku eftir þessu en þessi peysa hlýtur að rjúka núna út í verslunum H&M.
Boro manager Kim Hellberg rocking an £11 H&M jumper on sale.
— Sanny Rudravajhala (@Sanny_Rudra) March 23, 2026
Man of the people. pic.twitter.com/1DYg6HKdKM
Athugasemdir





