Bruno sagður falur fyrir 60 milljónir punda - Sancho aftur til Dortmund - Zidane tekur við Frökkum - De Zerbi til Spurs
   þri 24. mars 2026 21:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Átti að vera frá í viku, í nóvember
Matthijs de Ligt.
Matthijs de Ligt.
Mynd: EPA
Mikil óvissa hefur ríkt um það hvenær Matthijs de Ligt snýr aftur á völlinn með Manchester United eftir bakmeiðsli.

Hollenski varnarmaðurinn hefur verið frá keppni síðan í nóvember en þá átti hann bara að vera frá í viku. Meiðslin hafa reynst flóknari en fyrst var talið, en hann hefur enn ekki getað æft og er langt frá því að vera klár í slaginn.

Þrátt fyrir það er De Ligt sjálfur bjartsýnn á að ná að spila aftur áður en tímabilinu lýkur.

Michael Carrick, stjóri Man Utd, hefur sagt að erfitt sé að setja tímaramma á endurkomuna enda séu bakmeiðsli oft óútreiknanleg.

De Ligt var fastamaður í byrjunarliði United áður en hann meiddist og hefur fjarvera hans verið liðinu erfið. Það er vonandi að hann geti snúið aftur á völlinn áður en tímabilið klárast, eins og hann stefnir á að gera.
Athugasemdir
banner
banner