Bruno sagður falur fyrir 60 milljónir punda - Sancho aftur til Dortmund - Zidane tekur við Frökkum - De Zerbi til Spurs
   þri 24. mars 2026 20:41
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Umboðsmaður Sesko: Mér líkar ekki þetta nafn
Benjamin Sesko og Michael Carrick.
Benjamin Sesko og Michael Carrick.
Mynd: EPA
Umboðsmaður Benjamin Sesko, framherja Manchester United, segir að honum hugnist ekki að leikmaðurinn sé kallaður „super sub“ eða á góðri íslensku 'ofurvaramaður'.

Sesko hefur undanfarið oft komið inn af bekknum og haft jákvæð áhrif í leikjum, en umboðsmaður hans vill ekki að hann sé settur í það hlutverk.

Sesko hefur skorað tíu mörk fyrir Man Utd í öllum keppnum á tímabilinu eftir 74 milljóna punda félagaskipti frá RB Leipzig síðasta sumar. Fjögur markanna hafa komið eftir að hann kom inn af bekknum, þar á meðal sigurmörk gegn Fulham og Everton og jöfnunarmark seint í leik gegn West Ham.

Þetta hefur leitt til þess að slóvenski landsliðsmaðurinn hefur verið kallaður „super sub“ af Michael Carrick sem stýrir United til bráðabirgða um þessar mundir. Umboðsmaður leikmannsins, Elvis Basanovic, vill þó að skjólstæðingur sinn sé þekktur fyrir meira en það.

„Ef þú spyrð mig um þetta nafn, þá líkar mér það ekki. Mér finnst 'super striker (ofursóknarmaður)' miklu betra,“ sagði umboðsmaðurinn við Arena Sport.

„Við sjáum að hann er heilsteyptur framherji og Benjamin á skilið að vera kallaður 'super striker'."

Kallað hefur verið meira eftir því að Sesko fái byrjunarliðssæti eftir frammistöðu hans að undanförnu. Framherjinn gaf þó til kynna í febrúar að hann væri nokkuð sáttur við hlutverk sitt á meðan hann aðlagast ensku úrvalsdeildinni þó umboðsmaðurinn sé ekki eins sáttur.
Athugasemdir
banner
banner