Bruno sagður falur fyrir 60 milljónir punda - Sancho aftur til Dortmund - Zidane tekur við Frökkum - De Zerbi til Spurs
   mið 25. mars 2026 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ætla að hafa betur í baráttunni við Arsenal
Leon Goretzka.
Leon Goretzka.
Mynd: EPA
AC Milan ætlar að hafa betur í baráttunni við Arsenal og fleiri félög um miðjumanninn Leon Goretzka.

Samkvæmt heimildum Goal er Milan að ýta fast á að fá Þjóðverjann til félagsins í sumar, en samningur hans við Bayern München rennur út og hann verður því laus á frjálsri sölu.

Arsenal hefur einnig verið sterklega orðað við leikmanninn, en Milan er að leggja mikla áherslu á að klára málið sem fyrst.

Goretzka, sem er 31 árs, hefur verið á mála hjá Bayern undanfarin ár en er nú á leið frá félaginu eftir tímabilið.


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Athugasemdir
banner