Bruno sagður falur fyrir 60 milljónir punda - Sancho aftur til Dortmund - Zidane tekur við Frökkum - De Zerbi til Spurs
   þri 24. mars 2026 18:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Haaland keypti bók Snorra Sturlusonar fyrir margar milljónir
Erling Haaland.
Erling Haaland.
Mynd: EPA
Erling Braut Haaland, markamaskína Manchester City og norska landsliðsins, hefur keypt dýrustu norsku bók allra tíma fyrir um 1,3 milljónir norskra króna. Það jafngildir rúmlega 16,6 milljónum íslenskra króna.

Um er að ræða afar sjaldgæfa útgáfu af konungasögum Snorra Sturlusonar frá árinu 1594, sem talin er ein mikilvægasta bók í norskri bókmenntasögu.

Haaland ætlar þó ekki að halda bókinni sjálfur, heldur gefa hana heimabyggð sinni, Time, þar sem hann ólst upp.

Markmiðið er að bókin verði aðgengileg almenningi og að fólk geti kynnt sér söguna, sérstaklega tengslin við Bryne og Jæren þar sem Haaland á rætur sínar.

Þá vill norski landsliðsmaðurinn einnig hvetja börn og ungmenni til lesturs í tengslum við gjöfina.
Athugasemdir
banner