Bruno sagður falur fyrir 60 milljónir punda - Sancho aftur til Dortmund - Zidane tekur við Frökkum - De Zerbi til Spurs
   mið 25. mars 2026 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Elskar Sancho og vill fá hann aftur
Snýr Sancho aftur til Dortmund?
Snýr Sancho aftur til Dortmund?
Mynd: EPA
Það virðist vera að sífellt meiri kraftur sé að færast í umræðuna um endurkomu Jadon Sancho til Borussia Dortmund í sumar.

Ástæðan er meðal annars sú að nýkjörinn forseti félagsins, Hans-Joachim Watzke, er sagður mjög sannfærður um að þetta sé rétta skrefið fyrir félagið. Hann er mikill aðdáandi Sancho og dýrkar leikmanninn.

Sancho, sem er nú á láni hjá Aston Villa, hefur þó einnig vakið áhuga annarra félaga og því er boltinn að lokum hjá leikmanninum sjálfum. Hurðin er opin hjá Dortmund og talið er að félagið geri ráð fyrir því að hann sé tilbúinn að taka verulega launalækkun frá risasamningi sínum hjá Manchester United til að snúa aftur.

Sancho naut sín best hjá Dortmund þar sem hann spilaði á árunum 2017 til 2021 og þróaðist í einn af efnilegustu leikmönnum Evrópu. Hann sneri síðar aftur á láni og fór alla leið í úrslit Meistaradeildarinnar með liðinu.

Síðustu ár hafa hins vegar verið erfið. Hann hefur aldrei fundið sig sérstaklega vel hjá Manchester United og lánsdvalir hans, fyrst hjá Chelsea og nú hjá Aston Villa, virðast ekki hafa gengið upp.

Núna er líklegast að hann snúi aftur til Dortmund.
Athugasemdir
banner