Það voru óvænt tíðindi úr Mosfellsbæ á sunnudag þegar Birkir Már Sævarsson var tilkynntur sem nýr leikmaður Aftureldingar. Birkir, sem er 41 árs, gengur til liðs við félagið eftir að hafa æft og spilað með KH í vetur. Í Aftureldingu mun Birkir spila ásamt litla bróður sínum, Aroni Elí Sævarssyni, fyrirliða liðsins.
Birkir var búinn að fá félagaskipti yfir í KH í vetur og ætlaði að spila með þeim í sumar áður en Afturelding kom að borðinu.
„Já, í rauninni þurfti að sannfæra mig mikið. Ég er yfirleitt laus á kvöldin og um helgar núna. Var bara með KH og gat aðeins stjórnað því hvernig ég æfði þar. Ég er náttúrulega orðinn frekar gamall, kominn í vinnu og er að njóta með fjölskyldunni," sagði Birkir í viðtali við Fótbolta.net á dögunum.
KH leikur í 3. deild karla í sumar eftir að hafa lent í öðru sæti 4. deildar á síðasta tímabili.
„Ég þurfti alveg að heyra í Halla Dan, þjálfara KH. Ég er mjög þakklátur honum fyrir að hafa tekið þessu vel. KH og strákarnir í liðinu þar eiga heiður skilið. Þeir héldu mér á tánum í allan vetur og það er þeim að þakka að ég er í þokkalegu standi núna."
Allt viðtalið við Birki má sjá í spilaranum hér fyrir neðan.
Athugasemdir


