Danski framherjinn Kasper Högh, sem lék með Val um tíma fyrir nokkrum árum síðan, er að slá í gegn þessa dagana og hefur vakið mikla athygli fyrir frammistöðu sína með Bodö/Glimt í Meistaradeildinni.
Högh, sem er lykilmaður hjá Bodö/Glimt, var á dögunum valinn í danska landsliðið í fyrsta sinn eftir frábæra frammistöðu og er ein helsta "sagan“ í fótboltaheiminum þessa dagana.
Högh, sem er lykilmaður hjá Bodö/Glimt, var á dögunum valinn í danska landsliðið í fyrsta sinn eftir frábæra frammistöðu og er ein helsta "sagan“ í fótboltaheiminum þessa dagana.
Það vekur athygli á Íslandi hversu langt hann er kominn á stuttum tíma enda er ekki svo langt síðan hann spilaði hér á landi með Val. Hann var að stíga upp úr meiðslum er hann kom til Vals á láni árið 2020. Honum tókst ekki að skora í íslenska boltanum en raðaði inn mörkum í Meistaradeildinni á þessu tímabili.
Í umfjöllun Tipsbladet kemur einnig fram áhugaverð hlið á ferli hans, en Högh hefur núna sagt að hann hafi fundið trú á Guð sem hafi hjálpað honum bæði innan vallar sem utan.
„Ég hef fundið Guð og þakka Guði fyrir það. Sjálfsvitundin hefur aukist. Ég er orðinn eldri og tel að maður læri af mistökum sínum," sagði Högh.
„Ég byrjaði á að kaupa Biblíuna og las hana. Fyrir mér snýst þetta um að vera góð manneskja. Það þýðir ekki að allir eigi að gera þetta, en fyrir mig er þetta rétta leiðin," bætti Högh við, en hann keypti sína fyrstu Biblíu fyrir um einu og hálfu ári síðan.
Högh segist hafa gert uppvís um heimskulega hluti í gegnum tíðina, partístand og þess háttar, en hann hafi litið inn á við og taki nú einn dag í einu.
Athugasemdir




