Robinson, Tonali og Iraola orðaðir við Man Utd - White á förum frá Arsenal? - Rudiger og Kolo Muani til Juve?
   mið 25. mars 2026 19:53
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Evrópubikarinn: Góðar líkur á Íslendingaslag í úrslitum
Kvenaboltinn
Thelma Karen Pálmadóttir.
Thelma Karen Pálmadóttir.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrri leikirnir í undanúrslitum Evrópubikars kvenna fóru fram í dag. Eftir leikina eru bara býsna góðar líkur á því að við fáum Íslendingaslag í úrslitum.

Sænska félagið Häcken gerði sér nefnilega lítið fyrir og skellti þýska úrvalsdeildarfélaginu Eintracht Frankfurt í Þýskalandi, 0-3. Fanney Inga Birkisdóttir og Thelma Karen Pálmadóttir voru báðar í byrjunarliði Häcken í leiknum.

Þetta voru talsverð óvænt úrslit, algjörlega stórkostleg úrslit fyrir Häcken á mjög erfiðum útivelli.

Í hinum undanúrslitaleiknum spilaði Guðrún Arnardóttir allan leikinn í 2-3 sigri Hammarby gegn Sparta Prag á útivelli.

Seinni leikirnir fara fram í næstu viku.
Slapp
Athugasemdir
banner