Það hafa orðið breytingar hjá FH í vetur og þrjár goðsagnir kvatt félagið.
Heimir Guðjónsson fékk ekki nýjan samning sem þjálfari liðsins, Björn Daníel Sverrisson lagði skóna á hilluna og Böðvar Böðvarsson var seldur í ÍA. Allir hafa þeir litað sögu FH miklum litum.
Heimir Guðjónsson fékk ekki nýjan samning sem þjálfari liðsins, Björn Daníel Sverrisson lagði skóna á hilluna og Böðvar Böðvarsson var seldur í ÍA. Allir hafa þeir litað sögu FH miklum litum.
Í Niðurtalningunni var rætt um þessar breytingar. Söngvarinn Friðrik Dór Jónsson var gestur ásamt Magnúsi Hauki Harðarsyni.
„Ég veit ekki hvort maður geti sagt að FH hafi verið einstaklingur sem hafi þurft á endurhæfingu að halda þegar Heimir kom inn. Þá er gott að hringja bara í mömmu og pabba og fáu þau til að sjá aðeins um sig. Svo ertu bara búinn að ná fyrri styrk og einhverju jafnvægi í þetta. Þá langar þig að prófa að standa á eigin fótum og nú erum við að fara í það mál," sagði Friðrik Dór í þættinum.
Alltaf þegar rætt er um FH, þá er rætt um gömlu góðu tímana. Núna er kominn tími til að líta fram á við.
„Auðvitað er það sárt, af því manni þykir vænt um Heimi," sagði Friðrik Dór um hvort það hefði verið sárt að sjá Heimi yfirgefa félagið. „Öllum FH-ingum þykir vænt um Heimi."
„En bara, ég er rosa þreyttur á öllu tali um FH. Þetta er alltaf fast í fortíðinni. Hvað er langt síðan við unnum titil?"
„Það eru tíu ár," sagði Magnús Haukur. „Það eru tíu ár. Núna getum við hætt að tala um þetta. Heimir er ekki þarna, Böddi er ekki þarna og Bjössi er ekki þarna. Förum að tala um eitthvað annað. Við vinnum okkur héðan. Ég nenni þessu ekki lengur."
„Finnum bara einhvern grundvöll, upp og áfram," sagði Frikki.
Það er bara gert inn á vellinum
Þeir voru þó sammála um að Fylkir væri þeirra lið í Lengjudeildinni í sumar en Heimir er tekinn við stjórnartaumunum í Árbænum. Í Kaplakrika er Jóhannes Karl Guðjónsson tekinn við liðinu og það á að yngja upp.
„Við erum langt frá því að vera með slæman leikmannahóp. Samband leikmanna og andinn skiptir þvílíku máli. Að menn hafi trú á verkefnið og séu að róa í sömu átt. Mér skilst að stemningin sé góð og allir til í þetta verkefni. Þetta er risaverkefni," sagði Friðrik Dór og bætti við að margir leikmenn í liðinu og fólk utan liðsins hefðu mikið að sanna.
„Jói Kalli virðist hafa fundið ákveðna hugmyndafræði fyrir sig. Það er mikilvægt fyrir þjálfara að vita hvernig þú ætlar að spila og hvernig þú ætlar að gera hlutina. Ég er spenntur að sjá það," sagði Maggi. „Þetta er spennandi ráðning, hann er stór prófíll og risa karakter. Hann fór erfiðu leiðina að hjörtum stuðningsmanna FH, allavega mér, en það er auðvelt að vinna til baka og það er bara gert inn á vellinum."
Hægt er að hlusta á Niðurtalninguna í spilaranum hér fyrir neðan og á öllum hlaðvarpsveitum.
Athugasemdir



